• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 3. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samningur undirritaður um eflingu heimagistingarvaktar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. júní 2018
in Óflokkað
A A
0

Samningur undirritaður um eflingu heimagistingarvaktar

Samningur undirritaður um eflingu heimagistingarvaktar - mynd
Eftirlit með heimagistingu verður mun virkara og sýnilegra með styrkingu á heimagistingarvakt Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttur ráðherra ferðamála og Þórólfur Halldórsson sýslumaðurinn á  höfuðborgarsvæðinu undirrituðu í dag samkomulag þar um.Samningurinn kveður á um 64 milljóna króna fjárveitingu til embættisins en það fer með eftirlit með heimagistingu á öllu landinu. Er þetta gert til að  öðlast yfirsýn yfir raunverulegt umfang heimagistingar, tryggja rétt skattskil einstaklinga og að lögaðilar sem stunda gististarfsemi afli sér rekstrarleyfis og starfsemin fari þar með að þeim lögum sem um hana gilda.
Hin svokallað 90 daga regla tók gildi í ársbyrjun 2017 en í henni felst að einstaklingum er heimilt að leigja út lögheimili sín og eina aðra fasteign sem er í þeirra eigu til allt að 90 daga á hverju almanaksári án þess að lúta sömu reglum um leyfi og gjöld og gilda um atvinnurekstur. Skráning fer fram með rafrænum hætti á www.heimagisting.is
Lagt er upp með að átaksverkefnið verði til eins árs og er markmiðið að það hafi hvetjandi áhrif á einstaklinga til að skrá skammtímaútleigu sína. Gert er ráð fyrir að starfsmönnum í heimagistingarvakt verði fjölgað úr þremur í ellefu og koma þeir til með að framkvæma vettvangsrannsóknir í kjölfar ábendinga frá almenningi eða á grundvelli upplýsinga sem koma fram í frumkvæðiseftirliti. Þá verða í hópnum tveir lögfræðingar sem munu halda utan um stjórnsýslumeðferð og ákvarðanir um stjórnvaldssektir. Þess má geta að frá því að Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu tók við málaflokki gististaða árið 2015 hefur umfang skammtímaleigu sjöfaldast.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála: „Það er ósanngjarnt gagnvart löglegum rekstri að menn komist upp með að spila ekki eftir reglunum. Við verðum að tryggja að allt sé uppi á borðum. Ég bind því miklar vonir við þetta samstarf við sýslumann og vænti þess að við sjáum stóraukinn fjölda skráninga heimagistingar innan skamms. Við höldum á sama tíma áfram að skoða málefni tengd gististarfsemi með öðrum ráðuneytum, skattinum og öðrum aðilum stjórnkerfisins sem hafa það sameiginlega verkefni að móta heildstæða umgjörð og eftirlit heimagistingar.“
Þórólfur Halldórsson sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu: „Ég fagna ákvörðun ráðherra um eflingu heimagistingarvaktarinnar. Ljóst er að allt of margir hafa ekki skráð þá heimagistingu sem að þeir halda úti og það er von okkar að þeir bregðist nú hratt við og skrái þær hið fyrsta enda mikilvægt allra vegna að þessi starfsemi sé uppi á borðinu.“
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?