• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 17. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Það er mikið frelsi að geta fjasað ábyrgðarlaust í góða veðrinu í Miðjarðarhafi á launum frá skattgreiðendum“

Brynjar Níelsson slær á létta strengi frá Mallorca

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. júlí 2022
in Afþreying
A A
0
Brynjar Níelsson slær á létta strengi frá Mallorca

,,Það er ekki fasísk skoðun að þegar fóstur er orðið að barni í móðurkviði hafi það einhvern rétt“

Sjónvarpsmaðurinn síkáti sendi mér pillu á miðli frjálslynda og víðsýna fólksins, sem einkum berst fyrir þöggun og útilokun þeirra sem eru ósammála þeim. Svona getur tilveran verið mótsagnakennd.

Glaðlynda sjónvarpsmanninum finnst skrítið að ég hafi ýjað að fasískri hegðun rithöfundar úti í bæ, sem vildi að starfsmenn Moggans beittu þöggunar – og útilokunaraðgerðum vegna viðhorfs ritstórans í loftslagsmálum, þar sem ég hafi greitt atkvæði gegn síðasta þungunarrofsfrumvarpi, vildi vísa 300 manns af landinu og nýja innflytjenda löggjöf og vildi þar að auki valdefla lögregluna.

Léttlyndi sjónvarpsmaðurinn áttar sig ekki á því frekar en rithöfundurinn úti í bæ að fasismi er fyrst og fremst hegðun en ekki það að einhver er ósammála manni. Skoðanir um þungunarrof hafa ekkert með fasisma að gera. Það er ekki fasísk skoðun að þegar fóstur er orðið að barni í móðurkviði hafi það einhvern rétt. Að vísa fólki úr landi sem hefur lögum samkvæmt ekki heimild til að vera er ekki fasismi eða breytingar á lögum um útlendinga í samræmi við lög í evrópulöndum. Að veita lögreglu svipaðar heimildir og í öðrum löndum til að framfylgja lögum og koma í veg fyrir skipulagða glæpastarfsemi er ekki fasismi.

Vissulega er fasismi ekki bara hegðun og hugarfar. Til er fasísk hugmyndafræði sem tekur úr sambandi réttindi borgaranna gagnvart yfirvöldum. Við erum hins vegar með stjórnarskrá sem verndar þau réttindi. Við þurfum því ekki að hafa áhyggjur að því og áhyggjur mínar beinast að fasískri hegðun margra í frjálsa samfélaginu, einkum þeirra sem reyna að selja sig sem frjálslynda og víðsýna. Þar eru mest áberandi elítuliðið úr fjölmiðlum og lista-og menningargeiranum sem finnst það sjálfsögð réttindi þeirra að skattgreiðendur tryggi afkomu þeirra. Gott ef það eru ekki mannréttindi.

Ofurhressi sjónvarpsmaðurinn er ekki ólíkur stjörnulögmanninum eina sanna. Voru báðir virkir í Sjálfstæðisflokknum en þegar þeim var hafnað í prófkjöri brast út einhver heift sem bara magnast með árunum. Þeir urðu allt í einu svo gáfaðir og réttsýnir. Um það er hins vegar talsverður ágreiningur.

Það er ljóst að við sjónvarpsmaðurinn hressi eigum bara eitt sameiginlegt en það er við erum alltaf jafn unglegir í útliti. Það sama verður ekki sagt um stjörnulögmanninn. Það er mikið frelsi að geta fjasað ábyrgðarlaust í góða veðrinu í Miðjarðarhafi á launum frá skattgreiðendum meðan vinnulúnir rithöfundar og sjónvarpsmenn híma heima í kuldanum með kvíða yfir því að þeir muni stikna úr hita innan fárra ára.

https://gamli.frettatiminn.is/27/05/2021/atli-fannar-bjo-til-skopmynd-af-brynjari-i-katljosthaettinum-um-samherja/

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Togarar á strandveiðum

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    128 deilingar
    Share 51 Tweet 32
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?