Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag er útlit fyrir norðaustan kalda eða strekking. Súld eða dálítil rigning norðan- og austanlands og hiti fer lækkandi þar, verður einungis á bilinu 5 til 10 stig þegar líður á daginn. Eins og algengt er í norðanátt léttir til sunnan heiða og þar verður hlýrra, eða allt að 17 stig á Suðurlandi þegar best lætur.
Á morgun má gera ráð fyrir svipuðu veðri áfram, nema hvað hitinn þokast niðurávið um eina til tvær gráður þegar svalara loft berst smám saman yfir landið. Annað kvöld fer síðan að lægja. Á sunnudag og mánudag er útlit fyrir hægan vind á mestöllu landinu og léttskýjað nokkuð víða.
Veðurhorfur á landinu
Norðaustanátt í dag, víða 8-15 m/s. Súld eða dálítil rigning norðan- og austanlands, hiti 5 til 10 stig. Léttir til sunnan heiða og hiti að 16 stigum.
Svipað veður á morgun, en kólnar lítillega og fer að draga úr vindi seinnipartinn.
Spá gerð: 27.09.2019 05:00. Gildir til: 28.09.2019 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðaustan 8-13 m/s. Skýjað og dálítil væta norðan- og austanlands, hiti 5 til 10 stig. Bjartviðri sunnan heiða og hiti að 15 stigum.
Á sunnudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 og víða léttskýjað, en skýjað með austurströndinni og smáskúrir syðst á landinu. Kólnandi veður.
Á mánudag:
Hæg norðlæg átt og léttskýjað, en skýjað austast á landinu. Hiti 5 til 10 stig.
Á þriðjudag:
Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti 3 til 9 stig yfir daginn, mildast á Suðvesturlandi.
Á miðvikudag:
Suðaustan kaldi eða strekkingur með lítilsháttar vætu sunnan- og vestanlands, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 5 til 10 stig.
Á fimmtudag:
Gengur mögulega í hvassa austanátt með rigningu sunnantil á landinu, en þurrt fyrir norðan.
Spá gerð: 26.09.2019 20:49. Gildir til: 03.10.2019 12:00.