• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tekið fram fyrir hendur Fiskistofustjóra – Kleifarbergið fær að veiða til vertíðarloka í boði Sjávarútvegsráðuneytisins

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. janúar 2019
in Ferðaþjónusta, Fréttir, Innlent
A A
0

Ráðuneytið losar Kleifaberg frá bryggju

         Kristján Þór Júlíusson, Sjávarútvegsráðherra

Skv. frétt Fréttablaðsins í dag hefur Sjávarútvegsráðuneytið frestað réttaráhrifum ákvörðunar Fiskistofu um að hneppa Kleifaberg RE-70 í 12 vikna veiðistöðvun vegna meints brottkasts afla við veiðar. Frestun réttaráhrifa nær til 15. apríl næstkomandi en vertíðarlok hafa ávalt verið miðuð við 11. maí ár hvert. 
Kleifabergið átti að fara í veiðibann frá 4. febrúar en mun nú geta haldið áfram veiðum eins og ekkert hafi í skorist til vertíðarloka. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun ný áhöfn fara um borð annað kvöld og sigla norður í Barentshaf en þar munu þeir veiða á rúmum þrjátíu dögum um 1.200 tonn af þorski ásamt meðafla.
Þá segir jafnframt í Fréttablaðinu: ,,þann fjórða janúar svipti Fiskistofa Kleifabergið veiðileyfi vegna rannsóknar hennar á brottkasti. „Þetta er niðurstaða sem liggur fyrir í framhaldi af rannsókn sem fór af stað í kjölfar upplýsinga sem komu meðal annars fram í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV,“ sagði Eyþór Björnsson, forstjóri Fiskistofu, þegar svipting veiðileyfisins var gerð opinber í Fréttablaðinu.
,,Fiskistofa taldi að útgerðin hafi haft ávinning af þessum brotum með því að kasta fyrir borð fiski sem annars tefði vinnslu um borð. „Eins og atvikum er lýst verður að ganga út frá því að um ásetningsbrot hafi verið að ræða,“ segir í ákvörðuninni og segja þeir miklu magni af fiski hafa verið hent með vitund og eftir fyrirmælum skipstjóra. Þann tíunda janúar síðastliðinn barst ráðuneytinu kæra Brims á ákvörðun Fiskistofu. Meðal annars er í kærunni bent á að andmælaréttur fyrirtækisins hafi verið brotinn gróflega af Fiskistofu og að rannsókn stofnunarinnar hafi verið ámælisverð.
Veiðileyfissvipting Fiskistofu er talin hafa getað rýrt tekjur Brims um milljarða og 12 vikna veiðistöðvun skipsins á þessum tíma hefði þýtt um sjö milljóna króna tekjumissi fyrir háseta á skipinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var óánægja með að svo stór ákvörðun Fiskistofu hafi verið tekin án þess að rætt hafi verið við forsvarsmenn skipsins og þeir fengið að segja skoðun sína.
„Svipting á veiðileyfi er ekki tekin út í loftið og er byggð á gögnum málsins,“ segir Eyþór Björnsson, forstjóri Fiskistofu. „Ákvörðun um frestun réttaráhrifa veiðileyfasviptingarinnar er ákvörðun ráðuneytisins og ég hef enga sérstaka skoðun á henni.“  Segir jafnframt í grein Fréttablaðsins. Þá er hægt að sjá hér vitnisburð sjómanns á Kleifarberginu sem að var upphaf málsins.
Tengt efni:
https://www.fti.is/2018/10/10/frumvarp-um-fiskeldi-til-ad-hnekkja-urskurdi-ursk%C2%ADurdar%C2%ADnefndar-um%C2%ADhverf%C2%ADis-og-audlinda%C2%ADmala/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    156 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    100 deilingar
    Share 40 Tweet 25
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?