• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið keypti vörur og þjónustu fyrir 117 milljarða

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. janúar 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ríkið keypti vörur og þjónustu fyrir um 117 milljarða króna 2018. Þegar kaup vegna þjónustusamninga og mannvirkjagerðar eru tekin með var heildarumfangið 202 milljarðar króna. Nú gefst almenningi kostur á að senda inn umsögn um stöðumat um opinber innkaup í samráðsgátt stjórnvalda.
Markviss innkaup geta haft veruleg áhrif á möguleika ríkisins til að fjármagna verkefni, t.d. getur 2% betri árangur í innkaupum samsvarað 2 hjúkrunarheimilum, 3333 mjaðmaliðsskiptaaðgerðum eða ferju eins og Herjólfi. Helstu áskoranir samtímans líkt og umhverfismál og öldrun þjóðar, kalla á áherslur í ríkisrekstrinum til aukinnar sjálfbærni og velsældar. Því skiptir miklu máli að ríkið nýti fjármunina sem best og leiti allra leiða til meiri hagkvæmni og betri árangurs.

Mikill árangur í sameiginlegum vörukaupum

Mikill árangur hefur náðst í sameiginlegum vörukaupum ríkisaðila undanfarin ár. Enn eru þó tækifæri til staðar í betri yfirsýn, upplýsingum og greiningum. Ráðuneytið leggur áherslur á að ná frekari árangri með markvissari þjónustukaupum, vistvænni valkostum og aukinni nýsköpun en í ljósi umfangs opinberra innkaupa getur ríkið sem kaupandi haft veruleg áhrif á eftirspurn eftir vistvænni valkostum og áhrif á þróun slíkra kosta.
Stöðumatið, stundum einnig nefnt grænbók, er umræðuskjal unnið í víðtæku samráði þar sem almenningi og hagsmunaaðilum er boðið að leggja fram sín sjónarmið um álitaefni, viðfangsefni og framtíðarsýn sem nýst gætu í stefnumótuninni. Í stöðumatinu eru skilgreind fimm lykilviðfangsefni sem stefnumótun á þessu sviði þarf að taka á og eru þau eftirfarandi:

  1. Ná fram hagkvæmum og vistvænum innkaupum sem tryggja sjálfbærni til lengri tíma litið.
  2. Auka faglega þekkingu innkaupaaðila til að stuðla að skilvirkum árangri í þjónustu ríkisins.
  3.  Tryggja nægilega samkeppni og örva nýliðun og nýsköpun með aukinni samvinnu við markaðinn.
  4. Nýta stafrænar innkaupaleiðir og upplýsingatækni markvisst til gagnagreiningar og sameiginlegra innkaupa.
  5.  Tryggja að almenningur og fyrirtæki eigi greiðan aðgang að upplýsingum um innkaup ríkisins.

Aðilar eru hvattir til að senda inn umsögn eða ábendingar enda er um mikilvægt tækifæri til móta framtíðarstefnuna. Frestur til að skila umsögn er til og með 18. febrúar 2020.

  • Skoða stöðumat í samráðsgátt stjórnvalda
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?