• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 13. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkislögreglustjóri leiðir starfshóp innanríkisráðherra um kynferðisbrot og kynbundið ofbeldi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra hefur falið Sigríði Björk Guðjónsdóttur, ríkislögreglustjóra að leiða starfshóp um forvarnir og vitundarvakningu gegn kynferðisbrotum og kynbundnu ofbeldi og áreiti.  Skal hópurinn styðja við uppbyggingu á samstarfi lögreglu og samstarfsaðila gegn ofbeldi og afleiðingum þess, þar á meðal í formlegri þjónustu við þolendur kynferðisbrota. Starfshópurinn mun einnig standa fyrir almennri vitundarvakningu um kynbundið ofbeldi í samfélaginu.

Kærum til lögreglu vegna kynferðisbrota fjölgaði um 24% frá 2020 til 2021. Heimilisofbeldismál af hendi maka eða fyrrum maka síðustu tvö árin hafa aldrei verið fleiri skv. málaskrá lögreglunnar, eða í kringum 750 talsins bæði árin.  Áhrifaríkustu aðferðirnar í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi eru virkar forvarnir, vitundarvakning og þróun á þverfaglegri samvinnu lögreglu við aðra lykilaðila.  Lögð er áhersla á slíkt í hinum ýmsu aðgerðaáætlunum stjórnvalda gegn ofbeldi og í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar fyrir yfirstandandi kjörtímabil.

Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra: „Til þess að ná alvöru tökum á kynferðisbrotum verður að virkja samfélagið.  Við berum öll ábyrgð á að uppræta það mein sem kynferðisbrot og kynbundið ofbeldi er í íslensku samfélagi.  Best væri að brotin ættu sér aldrei stað og virkar forvarnir og vitundarvakning eru lykilþættir í að stuðla að því. Þegar brotin eiga sér hins vegar stað þurfum við að þróa samvinnu lögreglu og annarra lykilaðila til að styðja sem best við þolendur.“

Í vinnu hópsins verður hugað sérstaklega að viðkvæmum hópum fólks sem reynslan hefur sýnt að eru í meiri hættu á að verða fyrir ofbeldi. Lagt er fyrir starfshópinn að gæta að samræmi við tillögur aðgerðaáætlana stjórnvalda í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og skal starfshópurinn leggja áherslu á viðtækt samráð innan þess sviðs.

Aðrir fulltrúar í starfshópnum eru Guðfinnur Sigurvinsson, verkefnastjóri, Hildur Sunna Pálmadóttir frá dómsmálaráðuneyti og Eygló Harðardóttir hjá embætti ríkislögreglustjóra.

Starfshópurinn hefur þegar tekið til starfa og er skipunartími hans til 31. desember 2022.  Skal hópurinn skila af sér reglulegum áfangaskýrslum til ráðherra, ásamt lokaskýrslu um árangur af störfum hópsins í desember 2022.

Umræða
Share8Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Alvarlega slasaður vegna hnífsstungu

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Veitingahúsið Eyri er fimm stjörnu og er við Hjalteyri

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hitinn getur farið yfir 28 stig – mögulegt að met verði slegin

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?