Alvarlegt umferðarslys varð á gatnamótum á Lambhagavegi í Reykjavík um hálfáttaleytið í kvöld, en þar var ekið á gangandi vegfaranda.
Lögreglan og sjúkraflutningamenn héldu þegar á vettvang, en slysið átti sér stað u.þ.b. miðja vegu á milli Bauhaus og Mímisbrunns.
Rannsókn slyssins er á frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Umræða