• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

Kaup Síldarvinnslunnar á helmingshlut í Ice Fresh Seafood af Samherja

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. febrúar 2024
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Samkeppniseftirlitinu hefur nýverið borist tilkynning um kaup Síldarvinnslunnar hf. á 50% hlut í Ice Fresh Seafood ehf. o.fl. af Samherja hf. Með þeim kaupum munu sjávarútvegsfyrirtækin fara með sameiginleg yfirráð í Ice Fresh Seafood og það félag framvegis sjá um sölu og markaðssetningu þeirra afurða sem bæði Samherji og Síldarvinnslan framleiða, þ.e. íslenskar sjávarafurðir.

Samkeppniseftirlitið hefur áður fjallað um tengsl milli Síldarvinnslunnar og Samherja, m.a. í ákvörðunum nr. 2/2021 og 28/2022 þar sem gerð er grein fyrir talsverðum stjórnunar-, eignar- og viðskiptatengslum milli Síldarvinnslunnar og Samherja, ásamt Gjögur hf./Kjálkanesi hf. Hafa þessi atriði verið talin veita vísbendingu um að stofnast hafi mögulega til yfirráða yfir Síldarvinnslunnar umfram það sem áður hefur komið fram í tilkynningum til Samkeppniseftirlitsins. Ekki hefur hins vegar verið talin þörf á því að leiða þetta til lykta í fyrri samrunamálum.

Tilkynningarskyldir samrunar eiga sér stað samkvæmt samkeppnislögum þegar breytingar verða á yfirráðum. Eitt af þeim atriðum sem þarfnast nánari rannsóknar í þessu máli eru tengsl Samherja og Síldarvinnslunnar, bæði fyrir og eftir samrunann, þar með talið hvaða áhrif kaup Síldarvinnslunnar og sameiginleg yfirráð með Samherja í Ice Fresh Seafood hafa í því samhengi.

Verður það því sérstakt athugunarefni hvort slík tengsl séu til staðar, eða séu að myndast með kaupunum, að líta beri á félögin sem eitt og sama fyrirtækið (í samkeppnisrétti nefnt ein efnahagsleg eining), þ.e. hvort samband þeirra sé svo náið að það jafngildir einni efnahagslegri einingu en ekki samstarfi sjálfstæðra keppinauta.

Nánari upplýsingar um samrunann má finna hér  í svonefndri samrunaskrá.

Samkeppniseftirlitið veitir hér með hverjum þeim sem hagsmuni eða áhuga hefur færi á því að koma á framfæri umsögnum, athugasemdum og/eða sjónarmiðum um viðskiptin, svo sem um eignar- og stjórnunarleg tengsl þessara fyrirtækja, hvort líta megi á þau sem eina efnahagslega einingu í skilningi samkeppnislag, áhrif samrunans, stöðu markaða og virkni samkeppni á viðkomandi mörkuðum.

Umsagnir skulu berast á gogn@samkeppni.is eigi síðar en fimmtudaginn 7. mars 2024.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    131 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?