Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af Tostitos salsasósu vegna glerbrots sem fannst í einni krukku. Aðföng sem flytur inn vöruna hefur innkallað lotuna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Tostitos
- Vöruheiti: Chunky Salsa, Medium
- Strikanúmer: 028400055987
- Best fyrir: 10. apríl 2019
- Lotunúmer: 2331100TB11:46
- Nettómagn: 439,4 g.
- Framleitt fyrir: Frito-Lay, Inc. í Bandaríkjunum.
- Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir Bónus, Hagkaupa og Super1 um land allt.
Viðskiptavinum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Ítarefni
- Fréttatilkynning Aðfanga
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
- Þessum upplýsingum átt þú rétt á – upplýsingaspjald Matvælastofnunar um merkingar matvæla
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
Umræða