,,Verðtryggðar skuldir heimilanna geta hækkað á skömmum tíma um 51 milljarð“
,,Það er algjört rannsóknarefni að ráðamenn og stjórnmálamenn almennt skuli láta það átölu- og afskiptalaust að verðtrygging á fjárskuldbindingum heimilanna fái að leika almenning og heimilin svona skelfilega“
Í fréttum hafa íslenskir spekingar verið að velta fyrir sér áhrifum falls WOW air á hina séríslensku verðtryggingu sem að hvergi er til í veröldinni nema á Íslandi.
Miðflokkurinn og Flokkur fólksins eru einu flokkarnir á Alþingi sem að hafa lagt fram frumvarp um að afnema verðtrygginguna
Sérfræðingar hafa verið að spá umtalsverðu gengisfalli og verðbólgu ef að WOW air félli sem að nú virðist vera reyndin og að Evran færi snarlega í 150 krónur og að 6% verðbólga mundi skella á þjóðina með tilheyrandi hörmungum.
Fjölmargir aðilar hafa varað við verðtryggingunni á Íslandi en Miðflokkurinn og Flokkur fólksins eru einu flokkarnir á Alþingi sem að hafa lagt fram frumvarp um að afnema verðtrygginguna. En enginn af hinum íslensku stjórnmálaflokkunum voru viðstaddir í þingsal daginn sem að frumvarpið var til umræðu á Alþingi enda andsnúnir afnámi verðtryggingarinnar.
Einn þeirra sem að hefur ítrekað bent á skaðsemi verðtryggingarinnar er Vilhjálmur Birgisson, á Akranesi og hann varaði við afleiðingunum áður en tilkynnt var um fall WOW air:
,,Hérna sjáum við hvernig hin viðbjóðslega verðtrygging sem íslensk heimili þurfa að búa við getur leikið íslenskan almenning skelfilega. Eins og kemur fram í þessari frétt þá ýja sumir sérfræðingar að því að verðbólgan geti farið í á skömmum tíma uppí allt að 6% ef WOW air verði gjaldþrota.
Þetta þýðir að verðtryggðar skuldir heimilanna geta hækkað á skömmum tíma um 51 milljarð og það bara vegna þess að eitt lítið fjólublátt flugfélag getur hugsanlega farið í þrot.“
,,Það er algjört rannsóknarefni að ráðamenn og stjórnmálamenn almennt skuli láta það átölu- og afskiptalaust að verðtrygging á fjárskuldbindingum heimilanna fái að leika almenning og heimilin svona svona skelfilega eins og þetta dapurlega dæmi um WOW air sýnir og sannar.“ Sagði Vilhjálmur Birgisson, á Akranesi sem varaði við afleiðingum verðtryggingarinnar áður en tilkynnt var um fall WOW air“
https://www.fti.is/2019/03/24/thingmenn-midflokksins-og-flokks-folksins-their-einu-a-althingi-sem-leggja-fram-frumvarp-um-ad-afnema-verdtrygginguna/