Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.
Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is
Þótt myndirnar séu óskýrar má ætla að þær geti gefið vísbendingar um hver maðurinn er, en talið er að hann sé erlendur ríkisborgari.
Umræða