Fundur var með lögreglunni á Austfjörðum og Veðurstofunni, þar sem staðan var metin á austfjörðum m.t.t. snjóflóðahættu og veðurs framundan. Ákveðið var að aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað.
Það eru götur:
Bakkabakki 1, 2, 3, 4a, 4b, 5, 6a, 6b, 6c, 7, 9, 10, 11, 12, 13 og 15
Bakkavegur 5
Gilsbakki 1, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 10, 12
Mýrargata 30, 32, 39 og 41
Nesbakki 2, 4 og 6
Starmýri 1
Vegna aðstæðna á svæðinu og slæmrar veðurspár á morgun, annað kvöld, verður ekki að svo stöddu tekin ákvörðun um frekari afléttingu. Veðurstofa metur aðstæður og ef þær breytast hvað rýmingu varðar mun það kynnt.
Heimilt er íbúum að sækja vistir og annað frá heimilum sínum á rýmingarsvæði. Vegna veðurs framundan er rétt að nýta daginn í dag. Þeir sem hyggjast nýta sér það eru beðnir um að fara áður í björgunarsveitarhús á sínu svæði þar sem skráning fer fram og fylgd, að sögn lögreglunnar.