Aðeins 45% vilja Guðna áfram – Tvær kannanir sýna svipaða niðurstöðu
Nú er mikið spáð í komandi forsetakosningar, þar sem þjóðin getur væntanlega valið um þrjá forsetaframbjóðendur, þá Axel Pétur Axelson, Guðmund Franklín Jónsson og Guðna Th. Jóhannesson. Meðmælendalistar hafa verið lagðir fram á Ísland.is þar sem hægt er að lýsa yfir stuðningi við þann sem fólki lýst best á og óskar eftir að nái tilskyldum fjölda meðmælenda.
Eftir því sem Fréttatíminn kemst næst, tóku 1800 manns þátt í könnunni og var hver IP tala bara skráð einu sinni þannig að ekki var hægt að svindla í könnunni með því að kjósa oftar en einu sinni.
Stuðningsmaður Guðmundar Franklín er ánægður með könnunina fyrir hans hönd og segir ,, Þetta er bara mjög góð niðurstaða, því við megum ekki gleyma því að hvorki RÚV eða Stöð tvö minntust einu orði á framboð Guðmundar Franklíns og það eru nú ekki nema þrír dagar síðan hann tilkynnti um framboð sitt. Þetta voru víst um 1800 manns í þessu úrtaki. Það væri fróðlegt að vita hvort allir sem spurðir voru hafi vitað af framboði Guðmundar Franklín? Það verður gaman að sjá næstu könnun!“ Að sögn eins stuðningsmanna framboðsins, segir að það gangi vel að safna undirskriftum og ,,Guðmundur Franklín muni fljúga inn.“
Engar fréttir hafa borist um hvernig söfnun undirskrifta fyrir Axel Pétur gangi.
https://gamli.frettatiminn.is/um-helmingur-vill-kjosa-annan-sem-forseta-en-gudna-th-johannesson/