,,Já var við veiðar í Leirvogsánni í fyrradag í geggjuðu veðri og hún kíkti við og fékk að sjálfsögðu að prófa og gerði sér lítið fyrir og tók fallegan birting. Hún hefur aldrei komið nálægt veiði áður og hefur aldrei kastað fyrir fisk áður“ sagði Óskar Örn Arnarsson um veiðiferð í Leirvogsá.
..Ég dróg út hæfilega línu fyrir hana og sagði henni svona nokkurn vegin hvernig hún ætti að gera þetta og hún kom línunni út og sagði um leið „þetta var ekki gott kast.“ Það leið ekki nema svona sekúnda, þegar fiskurinn var búinn að negla fluguna hjá henni. Þetta gerðist svo hratt að ég held að hún sé enn að átta sig á því að hún hafi veitt þennan fisk.
Þetta var sem sagt allt í senn fyrsti fiskurinn, fyrsti flugufiskurinn og í fyrsta kasti! En það er óhætt að segja að það hafi kviknað á veiðidellunni hjá henni því núna eru vöðlur og stöng komnar á óskalistann. Annars gekk dúndurvel hjá okkur, við settum í níu fiska og lönduðum sjö. Besta svæðið var frá Varmadalsgrjóti niður að Neðri Skauta, sáum fisk í Birgishyl og Einbúa en það gekk ekki vel að fá hann til að taka. Allir birtingarnir voru bjartir og fallegir“ sagði Óskar Örn enn fremur.