Brot 52 ökumanna voru mynduð á Flókagötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Flókagötu í austurátt, við Kjarvalsstaði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 137 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.
Brot 227 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 23. maí til mánudagsins 27. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tæplega fjórum sólarhringum fóru 22.438 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 99. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.
Umræða