Lögreglan á Norðurlandi eystra er langt komin með rannsókn í tengslum við heimilisofbeldi sem átti sér stað í heimahúsi á Húsavík í fyrrinótt en þar lenti par, sem er búsett á Húsavík, í útistöðum og var maðurinn stunginn með hnífi.
Fjallað er um málið í Morgunblaðinu i dag og þar kemur fram að ,,maðurinn hlaut talsverða áverka og var fluttur á Heilbrigðisstofnun Norðurlands til aðhlynningar og var hann útskrifaður í gær að sögn Skarphéðins Aðalsteinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá embætti lögreglunnar á Norðurlandi eystra í viðtali við Mbl..
„Það var tekin skýrsla af konunni í gær og hún gekkst við því sem þarna gerðist og það kemur alveg heim og saman við það sem vettvangurinn sagði okkur sem og brotaþolinn. Hún var því látin laus,“ segir Skarphéðinn við mbl.is.
Hann segir að það sé alltaf litið alvarlegum augum þegar gripið er til vopna. „Þetta er því miður orðið allt of algengt og við höfum áhyggjur af þessu,“ segir Skarphéðinn.
Konur beita líkamlegu og andlegu ofbeldi, tálmunum ofl. – Samtök um Karlaathvarf