Miðflokkurinn mælist með 9,8% fylgi í nýrri skoðanakönnun sem Fréttablaðið lét vinna fyrir sig. En það er aukning um heil þrjú prósent frá síðustu könnun blaðsins og er Miðflokkurinn þar með kominn nálægt kjörfylgi sínu. Framsóknarflokkurinn tapar rúmum tveimur prósentum og er með 7,1 prósenta fylgi.
Tæplega 4 af hverjum 10 styðja ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur
39,7 prósent segjast ekki styðja ríkisstjórnina og um 34,6 prósent segjast styðja hana. Talsvert fleiri segjast ekki vita hvort þeir styðji stjórnina frá síðustu könnun, eða 23,1 prósent en það er hækkun um tæp sjö prósentustig.
Vinstri græn mælast nú með 13,1 prósent en voru með 10,2 prósent í síðustu könnun. Sjálfstæðisflokkurinn fer úr 24,2 prósentum niður í 22,6. Píratar bæta við sig rúmum tveimur prósentum frá síðustu könnun og fara úr 13 prósentum upp í 15,2 prósent og er stærsti flokkurinn í stjórnarandstöðu og með næstmest fylgi flokka á eftir Sjálfstæðisflokknum.
Samfylkingin, sem var með 17,4 prósent í síðustu könnun, tapar hins vegar þremur prósentum og fer niður í 14,1 prósent. Fylgi Viðreisnar er hins vegar stöðugt milli kannana, Var 9,9 prósent í síðustu könnun og er nú 9,7 prósent. Flokkur fólksins tapar einu prósenti milli kannana og fer úr 5,3 prósentum í 4,3 prósent.
Könnunin var gerð dagana 25.-27. júní og var send á 2000 manna könnunarhóp Zenter rannsókna, átján ára og eldri. Svarhlutfallið var 51 prósent.
Sjá nánar í Fréttablaðinu í dag