Vítalía Lazareva og Arnar Grant hafa verð kærð til héraðssaksóknara fyrir tilraun til fjárkúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífs. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins í dag. Kærendur eru Ari Edwald, Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson. Vegna máls sem má rekja til meintrar pottaferðar í sumarbústað í Skorradal í október 2020.
Í fréttinni kemur fram að ekki hafði verið gert ráð fyrir Vítalíu í ferðinni, heldur voru þeir þar að skemmta sér Ari, Arnar, Hreggviður, Þórður Már og Þorsteinn M. Jónsson en hún kom í bústaðinn eftir vinnu sína. Tvennum sögum fer af því hvernig á því stóð en hún var sögð komin til þeirra um miðnætti og var ölvun orðin töluverð í bústaðnum og yfirgaf Þorsteinn samkvæmið stuttu síðar.
Eftir umrætt kvöld munu engin samskipti hafa átt sér stað milli Ara, Hreggviðar og Þórðar annars vegar og Vítalíu hins vegar fyrr en ári síðar. Þann 28. október að þeir fengu skilaboð frá henni þess efnis að hún hyggðist leita réttar síns vegna atvika sem í bústaðnum hefðu orðið. Fyrir hádegi næsta dag, 29. október 2021 leituðu þeir Ari, Hreggviður og Þórður skýringa á skilaboðunum hjá Arnari Grant, sem gat engar skýringar gefið.
Síðdegis þennan sama dag birti Vítalía frásögn á Instagram þess efnis að brotið hafi verið á henni kynferðislega í heitum potti í sumarbústað ári áður og birtir hún nöfn Ara, Hreggviðs, Þórðar Más og Arnars Grant. Færslan er tekin niður síðar sama dag. Arnar var í hópi þeirra sem sakaður var um brot í fyrrnefndri færslu Vítalíu.
Í kjölfarið sendi Vítalía skilaboð til sonar eins mannana og greindi honum frá því að hún hygðist kæra föður hans. Svo fóru að berast umslög í bréfapósti, bæði til fjölskyldumeðlima mannana, og samstarfsmanna þeirra í viðskiptalífinu. Í umslögunum sem voru stíluð á tiltekna viðtakendur með rauðum tússpenna, voru útprentuð skjáskot af fyrrnefndri færslu Vítalíu ásamt miða með orðunum: „Hver borgaði milljónir fyrir þögnina“ og „hver átti húsið með heita pottinum?“
Meðal þeirra sem fengu slíkar póstsendingar voru kona Þórðar, stjórnarkonur í Festi, framkvæmdarstjóri Krónunnar og stjórnarformaður og framkvæmdarstjóri Mjólkursamsölunnar. Síðar í mánuðinum fékk kona Hreggviðs einnig slíka sendingu að því er fram kemur í fréttinni og jafnframt: ,,Um sama leiti og skeytasendingar gengu sem harðast, leituðu kærendur til lögmanns sem þekkti til fjölskyldu Vítalíu í þeim erindagjörðum að biðja hann að setja sig í samband við hana í því skyni að komast að því hvað vekti fyrir henni. Er lögmaðurinn talinn mikilvægt vitni um atvik máls en hann er sagður hafa borið skilaboð frá hinum kærðu til kærenda. Fundaði hann þrisvar sinnum með Vítalíu og er Arnar sagður hafa verið með henni á tvemur þeirra funda, sem ráðgjafi hennar. Fundir þessir fóru fram 8. og 14. desember.
Heimildir Fréttablaðsins herma að lögmaðurinn hafi borið þremenningunum þau skilaboð frá Vítalíu og Arnari að greiða þyrfti alvöru fjárhæð til að allir gengju stoltir frá borði og hefðu hagsmuni af því að þegja. Taldi hann framan af að ger væri krafa upp á fimmtíu milljónir en meðal gagna málsins er einnig skjáskot af skilaboðum til lögmannsins með hugmynd um greiðslu upp á 3 sinnum þá fjárhæð, samtals 150 milljónir „eftir skatta“ eins og það er orðað. Er í kærunni gengið út frá því að skilaboðin séu frá Vítalíu en Fréttablaðið hefur ekki fengið staðfest að svo sé. Í skilaboðunum segir:
„Þá þarf að stilla því upp að þetta er upphæðin eftir skatt svo ekki séu svona brellur eins og þeir voru með síðast. Hvort hægt sé að greiða fyrir ráðgjöf og setja það þannig upp eða eins og sé verið að greiða fyrir hugvit eða slíkt.“
Í Fréttablaðinu segir að þeir telji þetta sýna ásetning fjárkúgunar. Fram kemur í fréttinni að engin kæra hafi borist á hendur þeim fyrir kynferðisbrot, þvert á hótanir og fullyrðingar þar að lútandi. Í kæru þremenningana kemur fram það mat að bæði símtöl og skilaboð Vítalíu og nafnlausu bréfin sýni ásetning til fjárkúgunar og að umrætt framferði hafi haft þann tilgang að auka líkur á að fjárkúgun bæri árangur.