Fréttir frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá 17:00 – 05:00. Á tímabilinu sinnti lögreglan 51 máli og fjórir voru vistaðir í fangageymslu
Ökumaður bifreiðar var handtekinn skömmu fyrir kvöldmat í gær, sá er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og að aka próflaus. Laus að lokinni sýnatöku.
Um svipað leiti óskaði leigubílstjóri eftir aðstoð lögreglu. Hann var með tvo farþega sem neituðu að borga fyrir farið. Seinna um kvöldið óskaði annar leigubílstjóri eftir aðstoð sökum sama aðila sem neitaði að borga fyrir farið með leigubifreið. Aðilinn var í framhaldinu vistaður í fangageymslu.
Nokkru síðar var ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, sá er einnig grunaður um fíkniefnamisferli. Laus að lokinni sýnatöku.
Lögreglu og sjúkraliði barst tilkynning um umferðaróhapp í vesturbæ Reykjavíkur í gær. Þar varð tveggja bíla árekstur og þurfti að draga báða bílana á brott með dráttarbifreið. Einn aðili var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið sökum slyssins.
Lögreglu barst önnur tilkynning um tveggja bíla umferðaróhapp í gær, það var á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar. Draga þurfti báða bílana á brott með dráttarbíl en engin slys urðu á fólki.
Skömmu eftir miðnætti var einn aðili handtekinn grunaður um fíkniefnamisferli, sá var í framhaldinu vistaður í fangageymslu.
Um 03:00 var einn aðili handtekinn fyrir að láta ófriðlega fyrir utan Slysadeildina á Borgarspítalanum. Sá er einnig grunaður um eignaspjöll. Aðilinn var fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem hann var laus eftir samtal við lögreglu.
Nú fyrir skömmu var aðili handtekinn grunaður um ölvun við akstur, sá er einnig grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og að aka próflaus.
Nokkrar tilkynningar komu í gærkvöldi um unglinga að aka ógætilega á vespum við Breiðholtsskóla. Svipaðar tilkynningar hafa verið að koma mjög reglulega inn á borð hjá lögreglu síðustu daga og vill lögregla brýna fyrir foreldrum að ræða við börn sín um að fara varlega á vespum eða sambærilegum ökutækjum.