Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóhanni Inga Ögmundssyni, 30 ára gömlum karlmanni. Talið er að hann sé klæddur í svartar Nike buxur sem eru smá eyddar á hliðunum og grárri hettupeysu.
Jóhann er þéttvaxinn, nánast sköllóttur og með skeggrót. Hann er 190 sentímetrar á hæð. Síðast er vitað um ferðir hans í Smáralind síðdegis í gær. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Jóhanns Inga eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.
Umræða