• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 13. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samkeppnismat nái líka til landbúnaðar og sjávarútvegs

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. ágúst 2018
in Óflokkað
A A
0

Samkeppnismat nái líka til landbúnaðar og sjávarútvegs

Félag atvinnurekenda fagnar ákvörðun Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra, um að framkvæma í samstarfi við OECD svokallað samkeppnismat á rekstrarumhverfi ferðaþjónustu og byggingariðnaðar.

OECD hefur um árabil bent á mikilvægi þess fyrir efnahag ríkja að hugað sé að áhrifum laga, reglna og stjórnvaldsákvarðana á samkeppni. Í þessu efni hefur OECD mótað verklag við svokallað samkeppnismat (Competition Assessment Toolkit).
Stjórnvöld geta beitt því til að efla samkeppni eða takmarka samkeppnishindranir sem stafað geta af lögum, reglum og stjórnvaldsfyrirmælum.
Þetta verklag kemur um leið í veg fyrir óþarfa reglubyrði á atvinnulíf, en slík reglubyrði felur alla jafna í sér samkeppnishindranir.
FA hefur undanfarin ár ítrekað hvatt til þess að slíku samkeppnismati sé beitt til að einfalda regluverk atvinnulífsins og meðal annars fundað um málið með fulltrúum OECD og Samkeppniseftirlitsins. Upptaka slíks samkeppnismats var ein af tillögunum í bréfi FA til Bjarna Benediktssonar, þáverandi forsætisráðherra, þar sem hvatt var til þess að stjórnvöld mótuðu nýja stefnu um einföldun regluverks atvinnulífsins.
Hlutverk stjórnvalda að passa upp á regluverkið
Í frétt frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu kemur fram að báðar atvinnugreinarnar sem skoða á með OECD séu mikilvægar fyr­ir ís­lenskt at­vinnu­líf og hafi staðið fyr­ir um 15% af lands­fram­leiðslu árið 2016 „Það á að vera hlut­verk stjórn­valda að passa upp á að reglu­verk at­vinnu­lífs­ins sé ekki meira íþyngj­andi en nauðsyn­legt er og því fagna ég þessu sam­keppn­ismati,“ seg­ir Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir, ferðamála-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra, í til­kynn­ing­u ráðuneytisins. Þar kemur einnig fram að at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneytið muni hafa um­sjón með verk­efn­inu í sam­vinnu við Sam­keppnis­eft­ir­litið. Verk­stjórn verði í hönd­um sam­keppn­is­deild­ar OECD. Gera má ráð fyr­ir því að verk­efnið taki 18 til 24 mánuði í fram­kvæmd auk eft­ir­fylgni að því loknu.
Víðtækar samkeppnishömlur í landbúnaði og sjávarútvegi
„Við fögnum því mjög að beita eigi samkeppnismatinu til að einfalda regluverk og efla samkeppni í þessum tveimur geirum,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. „Augljóst og nærtækt næsta skref er að taka fyrir tvær aðrar atvinnugreinar sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur á sinni könnu, það er landbúnað og sjávarútveg. Í báðum greinum eru í gildi víðtækar samkeppnishömlur og full ástæða til þess að ráðherra þess málaflokks passi líka upp á regluverkið.“
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    188 deilingar
    Share 75 Tweet 47
  • Eftirlýst kona handtekin

    68 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    194 deilingar
    Share 78 Tweet 49
  • Á ekki fyrir mat fyrir barnið sitt – Einstæð móðir á aðeins 459 krónur

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
  • Loðin svör um 54 milljarða sem fóru í loftlagsmál

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?