• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 13. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

75 metra hár borgarísjaki blasti við áhöfninni á TF-EIR

75 metra hár borgarísjaki blasti við áhöfninni á TF-EIR

Til samanburðar má nefna að Hallgrímskirkja er 74,5 metrar á hæð

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. ágúst 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur að undanförnu borist fjöldi ábendinga um borgarís á veiðislóðum og siglingaleiðum umhverfis landið. Eins og alltaf þegar slíkar tilkynningar berast eru lesnar út siglingaviðvaranir þar sem sjófarendur eru upplýstir um staðsetningu íssins. Vegna fjölda tilkynninga var ákveðið að áhöfnin á TF-EIR færi í ískönnunarflug á siglingaleiðinni undan Norðvesturlandi, þ.e. frá Sauðanesi að Hornbjargi og á veiðislóð norður af Ströndum.

Vel viðraði til ískönnunarflugsins í gær og þegar þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var stutt vestur af Skagatá kom áhöfnin auga á fyrsta borgarísjakann. Þyrlusveitin tilkynnti stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um borgarísinn og í kjölfarið var siglingaviðvörun gefin út enda var ísinn í siglingaleið skipa á þessum slóðum.

Þyrlusveitin hélt ferð sinni áfram og þegar hún var stödd norður af Hornbjargi varð áhöfnin vör við stóran borgarís í veðurratsjá þyrlunnar en hann var djúpt undan landi. Áhöfnin hélt á staðinn og þegar þyrlan var um 42 sjómílur norður af bjarginu blasti 300 metra langur, 300 metra breiður og allt að 75 metra hár borgarís við áhöfninni.

Miðað við stærð íssins og dýpis á svæðinu þóttu allar líkur á því að ísinn væri strandaður. Áhöfnin notaði tækifærið hélt stutta æfingu þar sem sigmaður þyrlusveitarinnar seig niður á ísinn og var svo hífður upp stuttu síðar.

Til samanburðar má nefna að Hallgrímskirkja er 74,5 metrar á hæð.

Landhelgisgæslan hvetur sjófarendur til að sína sérstaka aðgát á þessum slóðum.

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ríkið afli tekna og auki velferð

    Eldsneyti hjá Costco hefur lækkað um hundrað krónur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Stórútgerðin greiðir himinhá veiðigjöld erlendis

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • Tveir vopnaðir byssum handteknir

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Flogið með lækningarvörur til Bretlands

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • Eyjólfur Ármannsson og kona hans eignuðust stúlku

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?