• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 8. desember 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
Áskrift
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

7,5 milljónir vegna hraðasekta og 12 umferðarslys

by Ritstjórn
28. október 2019
in Fréttir, Innlent
0
Deila á FacebookDeila á X

 
12 umferðarslys eru skráð í umdæmi Lögreglunnar á Suðurlandi í liðinni viku. Í Gærmorgun um kl. 09:30 fór bifreið út af vegi við Hunkubakka og valt. Tveir menn voru í bílnum og var þyrla LHG kölluð til til að flytja þá af vettvangi. Þegar þetta er skrifað liggja ekki fyrir upplýsingar um aðdraganda slyssins eða ástand þeirra slösuðu. Þann 24. október fauk bifreið út af Suðurlandsvegi við Núpsstað. Ökumaður var nýkominn til landsins með bifreiðna með Norrænu til Seyðisfjarðar og eru meiðsl hans minniháttar.
Sama dag fauk trailer utan í vegrið á Suðurlandsvegi við Hveradali. Loka þurfti veginum um tíma meðan verið var að greiða úr því. Sendibifreið fauk út af veginum skammt vestan Almannaskarðs þann 25. október. Ökumaður hennar er ekki talinn alvarlega slasaður. Þann sama dag valt bifreið út af Suðurlandsvegi við Kögunarhól. Bifreiðin fór tvær veltur en ökumaðurinn bar sig vel og taldi meiðsl sín minniháttar. Ökumenn tveggja fjórhjóla sem rákust saman skammt frá Sólheimum þennan sama dag slösuðust eitthvað. Ekki liggja fyrir upplýsingar um alvarleika meiðsla þeirra ennþá.
Ferðamenn í tveimur aðskildum málum höfðu samband við lögreglu í gær og óskuðu aðstoðar þar sem þeir höfðu fest bifreiðar sínar á Kjalvegi. Þeim var komið í samband við dráttarbílaþjónustu sem aðstoðaði þá við að komast til byggða.
92 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í vikunni. Sektarupphæðin samanlagt rúmlega 7,5 milljónir og af henni eiga erlendir ferðamenn um 2/3
5 voru kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur bifreiða sinna og einn þeirra var að auki í símanum án handfrjáls búnaðar. Svo var reyndar um tvo aðra en báðir höfðu þó þá málsvörn að hafa spennt á sig beltin.

Umræða
  • NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    643 deilingar
    Share 257 Tweet 161
  • ,,Af hverju í ósköpunum ættum við að rukka þig fyrir að nota peningana þína?“

    271 deilingar
    Share 108 Tweet 68
  • Mál Alberts Guðmundssonar komið til héraðssaksóknara

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • 23 ára hælisleitandi dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Allt að 15 stiga frost næstu daga

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?