Seðlabanki Íslands hefur sent frá sér tilkynningu vegna meints gagnaleka er húsleit fór fram hjá Samherja
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hefur rannsókn innri endurskoðanda Seðlabankans leitt í ljós að starfsmaður Seðlabankans og fréttamaður Ríkisútvarpsins áttu í samskiptum áður en húsleit fór fram hjá Samherja hf. og tengdum aðilum.
Nánar tiltekið fólust samskiptin í því að fréttamaðurinn sendi uppkast að frétt með tölvupósti þar sem húsleitarinnar var getið – daginn áður en hún fór fram.
Rannsókn bankans sýndi hins vegar að þessum pósti var ekki svarað. Það er því ekkert sem liggur fyrir um að upplýsingum hafi verið lekið frá Seðlabankanum enda ljóst að téð húsleit var á vitorði margra.
Forsætisráðuneytið upplýsti lögreglu um niðurstöður rannsóknar Seðlabankans hvað þetta varðar án þess þó að í því hafi falist nokkur efnisleg afstaða eins og fram kemur í bréfi ráðuneytisins.