Á Íslandi hafa foreldrar haft börn sín í bómull undanfarna áratugi eins og frægt er og „börnunum“ er svo ekki treyst til að yfirgefa hreiðrið oft á tíðum fyrr en þau eru komin á fertugsaldurinn. Þetta er því miður staðreynd víða og „börnin“ þekkja ekkert annað en að vera á Hótel mömmu & pabba, þar sem þau lifa frítt, bæði hvað varðar gistingu, mat, drykk og fleiri fríðindi og borga ekki krónu fyrir munaðinn. Hvað þá að taka þátt í húsverkum eða létta undir.
Við tökum örugglega framúr Ítölum á þessu sviði enda eigum við yfirleitt öll heimsmet í fáránleika. Las neðangreinda frétt og dattt í hug að deila henni þar sem við sem þjóð stöndum Ítölum líklega jafnfætis oft á tíðum og ég spái að við tökum við fyrsta sætinu af þeim, enda best í heimi, ef við höfum þá ekki þegar gert það.
Móðir tveggja manna var komin með nóg af því að þeir byggju ennþá heima hjá henni. Mennirnir eru á fimmtugsaldri, borguðu ekki til heimilisins og sinntu engum húsverkum að sögn móður þeirra. Dómarinn hafði samúð með konunni.
,,Kona á áttræðisaldri í borginni Pavia á Ítalíu fékk því framgengt í gegnum dómstóla að synir hennar flytji að heiman. Mennirnir eru 40 og 42 ára gamlir. Konan var orðin þreytt á því að mennirnir héldu sig bara heima hjá mömmu eftir vinnu, og hafði nokkrum sinnum reynt að sannfæra þá um að flytja í eigin íbúðir.
Hafa um einn og hálfan mánuð til að fara
Móðirin var einnig komin með nóg af því að synir hennar greiddu ekkert til heimilisins eða sinntu húsverkum. Fullsödd á hegðun sona sinna leitaði hún því til dómstóla. Dómarinn fann til með henni og úrskurðaði að synir hennar skildu bornir út af heimili hennar.
Í úrskurðinum sagði dómarinn að þó mennirnir hafi í raun rétt til þess að búa áfram hjá móður sinni vegna skyldu foreldra um að sjá um börnin sín, þá hafi móðirin fyrir löngu lokið þeirri skyldu þar sem mennirnir eru báðir yfir fertugt. Þeir hafa um einn og hálfan mánuð til að flytja frá móður sinni.
Viðvarandi vandi
Nærri 70 prósent Ítala á aldrinum 18 til 34 ára búa enn heima hjá foreldrum sínum samkvæmt opinberum gögnum frá því í fyrra. Þetta hefur lengi verið þekkt í ítalskri menningu, en undanfarin ár hefur fólk farið að dvelja lengur í foreldrahúsum. Helstu ástæður þess eru erfitt efnahagsástand á Ítalíu og hversu langan tíma það getur tekið að finna langtímastarf.