• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 15. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Styrkir verkefni í þágu trans-barna og hinsegin fólks

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. nóvember 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Heilbrigðisráðuneytið hefur hlotið 4.080.000 milljónir króna úr Framkvæmdasjóði hinsegin málefna sem renna til tveggja afmarkaðra verkefna á Landspítala í þágu trans barna og hinsegin fólks. Annars vegar verður ráðist í rannsókn sem miðar að því að kortleggja þarfir og óskir hinsegin fólks sem leitar eftir heilbrigðisþjónustu transteymis Landspítala. Hins vegar er um að ræða þróunarverkefni á barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) sem felst í því að undirbúa og koma á fót fræðsluhópi fyrir foreldra trans barna sem eru í þjónustu hjá transteymi BUGL.

Framkvæmdasjóður hinsegin málefna starfar á grundvelli aðgerðaáætlunar í málefnum hinsegin fólks til ársins 2025 og er á forræði forsætisráðuneytisins. Sjóðurinn fylgir eftir verkefnum úr þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks svo nýta megi niðurstöður, reynslu og þekkingu sem úr þeim fæst. Markmið þessara tveggja verkefna sem verða styrkt er að tryggja viðeigandi og fordómalausa heilbrigðisþjónustu fyrir trans fólk.

Kortlagning á þjónustu við hinsegin fólk

Verkefnið felur í sér tímabundna ráðningu meistaranema í heilbrigðisvísindum sem mun vinna að því að kortleggja þarfir og óskir hinsegin fólks sem leitar eftir heilbrigðisþjónustu transteymis Landspítala og hve vel þjónustan mætir þörfum þess. Undanfarin ár hefur orðin mikil fjölgun þeirra sem leita eftir þjónustu teymisins. Tilfinning meðferðaraðila er sú að fjölbreytileiki og þjónustuþarfir hópsins hafi breyst á undanförnum árum. Því sé sérstaklega mikilvægt að kortleggja þarfir hans og vinna á markvissan hátt með þau gögn sem fyrir liggja til að varpa ljósi á þróunina. Styrkur til verkefnisins nemur 2.000.000 króna. Mótframlag geðþjónustu Landspítala felst í að veita hlutaðeigandi reglubundna handleiðslu.

Fræðsluhópur fyrir foreldra trans barna

Transteymi BUGL mun undirbúa og koma á fót fræðsluhópi fyrir foreldra trans barna sem eru í þjónustu teymisins. Fyrir liggur að eftirspurn og áhugi er meðal foreldra á slíkum stuðningi. Fyrirliggjandi erlent námsefni verður þýtt og staðfært og útbúið fræðsluefni sem nýtist á námskeiðum fyrir foreldra. Námskeiðið verður skipulagt að fyrirmynd foreldranámskeiðs sem þegar er haldið reglulega fyrir foreldra barna með einhverfu í þjónustu hjá BUGL. Styrkur til verkefnisins nemur 2.080.000 króna.

 

Umræða
Share4Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    62 deilingar
    Share 25 Tweet 16
  • Veitingahúsið Eyri er fimm stjörnu og er við Hjalteyri

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Strandveiðimenn mótmæla stjórnarandstöðunni við Alþingi, í dag og á morgun

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Hitinn getur farið yfir 28 stig – mögulegt að met verði slegin

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?