Fimm manns voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu í og við Hvalfjarðargöngin á tíunda tímanum í morgun eftir að henni bárust upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir.
Fimmmenningarnir voru á tveimur bifreiðum, önnur var stöðvuð í Hvalfjarðargöngunum en hin við norðurenda þeirra. Hinir handteknu voru færðir á lögreglustöð, en í fórum þeirra fundust fíkniefni. Málið telst að mestu upplýst. Við aðgerðirnar í morgun naut lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu aðstoðar lögreglunnar á Vesturlandi og sérsveitar ríkislögreglustjóra.