Dregið hefur úr skjálftahrinunni við Reykjanestá en enn mælast jarðskjálftar á svæðinu. Um 600 skjálftar hafa mælst á svæðinu frá því að virknin hófst 15. febrúar. Hrinan úti fyrir Gjögurtá er enn í gangi þó dregið hafi úr henni frá því um helgina. Veðurstofan varar við hellaskoðun við Eldvörpin á Reykjanesskaganum. Gasmælingar þar í síðustu viku sýndu lífshættuleg gildi á koltvísýringi og súrefnisskort í helli við bílastæði þaðan sem eru vinsælar gönguleiðir.
Virkni við Grindavík
Dregið hefur verulega úr jarðskjálftavirkni við Þorbjörn síðustu daga. Ekkert landris mælist lengur og líklegasta skýringin sé að kvikuinnflæði sé lokið í bili. Vísbendingar eru um lítilsháttar sig frá miðjum febrúar en of snemmt er að túlka mælingarnar.
Vikuyfirlit 17. febrúar – 23. febrúar
Suðurland
Tæplega 10 jarðskjálftar mældust á Suðurlandi í vikunni, umtalsvert færri en vikuna á undan þegar um 40 skjálftar mældust. Einn skjálfti mældist við Vatnafjöll en aðrir skjálftar dreifðust um Suðurlandsbrotabeltið. Hvorki mældist skjálfti í Heklu né Henglinum í vikunni.
Reykjanesskagi
Rúmlega 460 jarðskjálftar mældust á Reykjanesskaga í liðinni viku, fleiri en vikuna á undan þegar að þeir voru rúmlega 350 talsins. Verulega dró úr virkni við Grindavík, þar sem um 100 skjálftar voru staðsettir meira en helmingi færri en í fyrri viku. Allir voru þeir undir M2,0 að stærð. Jarðskjálftahrinan á Reykjanestá hélt áfram og þar var virknin mest, en um 450 skjálftar mældust þar í vikunni og þar var jafnframt stærsti skjálfti vikunnar, M3,1 að stærð þann 22. febrúar. Við Fagradalsfjall mældust sex smáskjálftar, tveir við Kleifarvatn og einnig í Krýsuvík. Fjórir skjálftar mældust út á Reykjaneshrygg, sá stærsti M2,9 þann 21. febrúar.
Norðurland
Tæplega 300 jarðskjálftar mældust á Norðurlandi í vikunni og voru þeir flestir staðsettir á Tjörnesbrotabeltinu, en þann 20. febrúar hófst jarðskjálftahrina á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu við Gjögurtá. Allir skjáftarnir voru undir M3,0 að stærð. Fimm smáskjálftar mældust austan við Grímsey og tæplega 10 smáskjálftar mældust í Öxarfirði. Fjórir smáskjálftar mældust við Bæjarfjall og þrír við Kröflu.
Hálendið
Rúmlega 40 skjálftar mældust norðan Vatnajökuls í vikunni, flestir í og við Herðubreið og Herðubreiðartögl. Um 10 smáskjálftar mældust í og norðan við Öskju. Undir Vatnajökli mældust tæplega 40 skjálftar, nokkuð fleiri en vikuna á undan. Í Bárðarbunguöskjunni mældust níu jarðskjáftar, sá stærsti 2,5 að stærð þann 20. febrúar. Þrír skjálftar mældust í bergganginum og tveir á djúpa svæðinu austan við Bárðarbungu. Tveir jarðskjálftar mældust í austanverðum Dyngjujökli og einn í Kverkfjöllum. Á Lokahrygg mældust fjórir smáskjálftar. Rúmlega 10 jarðskjálftar, allir undir 2, að stærð, mældust við Grímsvötn. Þá var sitthvor smáskjálftinn staðsettur í Öræfajökli og í Skaftafellsfjöllum. Þrír skjálftar mældust við Langjökul í liðinni viku, sá stærsti M2,0 að stærð
Mýrdalsjökull
Þrettán jarðskjálftar mældust í Kötluöskjunni í vikunni, fimm fleiri en í fyrri viku. Allir voru þeir undir M2,0 að stærð. Enginn skjálfti mældist við Torfajökul.
Jarðvakt