• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Viðbótar kröfur skipasmíðastöðvarinnar vegna smíði Herjólfs standast enga skoðun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. mars 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Skipasmíðastöðin Crist S.A. í Póllandi sem smíðar nýjan Herjólf hefur skyndilega á lokametrum verksins krafist viðbótargreiðslu sem nemur nærri þriðjungi af heildarverði skipsins. Engin stoð er í samningi aðila fyrir þessari kröfu skipasmíðastöðvarinnar, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Samningur aðila hvað á um smíðaverð upp á 26.250.000 evrur, síðan hefur verið samið um fjölda aukaverka, þar á meðal fulla rafvæðingu Herjólfs, alls upp á 3.492.257 evrur. Skriflegir samningar eru til um öll þessi aukaverk svo sem eðlilegt er. Tafir hafa orðið miklar þrátt fyrir að í samningum um aukaverk hafi verið samið um lengdan verktíma. Tafabætur nema núna ríflega einni og hálfri milljón evra, samkvæmt útreikningum Vegagerðarinnar.
Samningsupphæðin ásamt samningum um aukaverk, ef horft er framhjá tafabótum, gera lokaverð uppá rétt ríflega 29,7 milljónir evra eða um 4 milljarða ísl. kr. á genginu í dag.
Skipasmíðastöðin gerir nú hinsvegar kröfu upp á heildarverð sem nemur 38.430.000 evrum eða ríflega 5,2 milljörðum ísl. kr. Krafan um viðbótargreiðslu, sem ekki hefur verið nefnd fyrr en nú, hljóðar upp á um 8,9 milljónir evra eða ríflega 1,2 milljarða ísl. kr. á gengi dagsins.
Það kom Vegagerðinni verulega á óvart að á lokastigum væri gerð þessi krafa um upphæð sem nemur um þriðjungi heildarverðsins. Þetta kemur sérstaklega á óvart þar sem smíðasamningurinn er alveg skýr í þessum efnum og á fundum með skipasmíðastöðinni hefur þetta aldrei verið nefnt.
Skipasmíðastöðin ber fyrir sig að hönnun skipsins hafi breyst sem feli í sér aukinn kostnað. En líkt og venjan er þegar samið er við skipasmíðastöð um smíði skips sem hefur verið forhannað þá tók Crist S.A. yfir fulla og ótakmarkaða ábyrgð á hönnun skipsins þegar samið var um smíðina. Þetta kemur strax fram í fyrsta kafla smíðasamningsins þar sem stendur:
1. Builder’s and Buyer’s obligations
It is mutually agreed between the Builder and the Buyer that:
(a) the Builder shall design, construct, test and survey, launch, equip, complete, sell and deliver the Vessel to the Buyer all in accordance with good international shipbuilding and marine engineering practice for modern passenger ferries operating in Northern Europe trade and suitable for the Intended Service. Although the Buyer has provided a presentation of the intended service (Annex B2) and certain tank tests and other inputs it is expressly agreed that all design and construction responsibility shall remain with the Builder; and
(b)the Buyer shall purchase, take delivery of and pay for the Vessel.
Þetta er síðan margítrekað í smíðalýsingunni, Annex B2, sem vísað er í hér að ofan.
Lenging og nýtt stefni
* Skipið var lengt um 1,8 m eftir að skipasmíðastöðin komst að því að skipið myndi verða þyngra en þeir höfðu áætlað og þeir gætu ekki staðið við ákvæði samningsins varðandi djúpristu og burðargetu (dauðvikt). Crist S.A. gerði tillögu að lengingu skipsins til þess að geta staðið við samninginn og var fallist á það.
* Samtímis var í samráði við Vegagerðina ákveðið að breyta stefni skipsins til að minnka mótstöðuna til að vega upp á móti aukinni mótstöðu við lenginguna og aukna djúpristu.
* Viðaukasamningur (Amendment NO 1) var gerður um lenginguna 7. september 2017. Þar eru ákvæðum samningsins sem lúta að stærð og djúpristu breytt og jafnframt var afhendingartími skipsins lengdur frá 20.6.2018 til 1.08.2018. Öll önnur ákvæði samningsins eru óbreytt þ.á m. verð, enda var farið eftir ákvæðum samningsins um ábyrgð Crist S.A. á hönnun skipsins.
* Hvergi í viðræðum við stöðina, fundargerðum, bréfum eða öðrum gögnum gerir Crist S.A. kröfu um aukaverð vegna þessara breytinga eða annarra fyrr en með bréfi þann 25.2.2019.
Það er því á engan hátt mögulegt fyrir Vegagerðina að ganga að kröfu skipasmíðastöðvarinnar um viðbótargreiðslu sem nemur stórum hluta af heildarverðinu, sem stenst á engan hátt samninga aðila um smíði ferjunnar og sem hefur ekki verið nefnt fyrr en fyrir um mánuði síðan.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    147 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?