Áhöfnin á TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar verður til taks á Akureyri fram á föstudag. Þangað hélt þyrlusveitin síðdegis og mun hafa aðsetur fyrir norðan ásamt lækni. Viðbragðstími þyrlunnar verður umtalsvert styttri þaðan en frá Reykjavík ef sinna þarf útkalli á Norður-eða Austurlandi.
Á Akureyrarflugvelli er góð aðstaða fyrir þyrluna. Þar er unnt að geyma hana inni í flugskýli á milli verkefna. Áhöfnin á TF-EIR verður á sama tíma til taks í Reykjavík.
Umræða