Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag verður veðrinu misskipt milli landshluta. Frá sunnanverðum Vestfjörðum og suður að Mýrdalsjökli er útlit fyrir að verði skýjað með köflum og sums staðar líkur á síðdegisskúrum. Annars staðar verður skýjað að mestu og fremur þokusælt, einkum við ströndina. Eins gæti ringt um tíma austantil á landinu. Hiti yfirleitt 10 til 17 stig þar sem sólar nýtur og allt að 20 stig þar sem best lætur en líklega verður það á Suðurlandi. Í þokuloftinu verður hitinn á bilinu 7 til 14 stig.
Veðuryfirlit
Á milli Íslands og Skotlands er allvíðáttumikil 1000 mb lægð sem hreyfist lítið og grynnist smám saman. Skammt SA af Hvarfi er 1011 mb smálægð sem fer hægt A.
Veðurhorfur á landinu
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 í dag. Dálítil úrkoma fyrir austan fram eftir degi, annars víða skúrir eða þokuloft en yfirleitt þurrt og bjart vestast á landinu. Austlæg eða breytileg átt á morgun. Skúrir í öllum landshlutum, en þurrt að kalla á Vestfjörðum. Hiti 7 til 19 stig, hlýjast sunnanlands í dag, en 8 til 17 stig á morgun, svalast við norðurströndina.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Hæg breytileg átt eða hafgola og þurrt að kalla, en stöku skúrir, einkum síðdegis. Úrkomumeira á morgun. Hiti 10 til 16 stig.
Spá gerð: 29.06.2022 04:01. Gildir til: 30.06.2022 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Hæg breytileg átt. Skýjað með köflum á landinu og víða líkur á skúrum, einkum síðdegis inn til landsins. Hiti víða 12 til 17 stig.
Á laugardag:
Norðlæg átt 3-10. Lítilsháttar rigning eða súld á norðanverðu landinu. Bjart með köflum sunnanlands með stöku skúrum síðdegis. Hiti frá 8 stigum fyrir norðan, upp í 18 stig syðst.
Á sunnudag:
Norðvestan 5-13 m/s. Rigning norðaustan og austanlands, hiti 6 til 10 stig. Yfirleitt þurrt og bjart veður um landið sunnan- og vestanvert með hita 12 til 17 stig.
Á mánudag:
Vestlæg átt og skýjað vestanlands, en léttir til á austanverðu landinu. Hiti víða 8 til 13 stig, en að 18 stigum á Suðausturlandi.
Á þriðjudag:
Suðvestanátt með súld eða rigningu, en bjart með köflum á austanverðu landinu. Hiti 11 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi.