Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast í dag 29. júní.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Óverðtryggð íbúðalán
Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 1,00 prósentustig og verða 6,59%
Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 7,75%
Kjörvextir
Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 1,00 prósentustig og verða 7,60%
Yfirdráttur og greiðsludreifing
Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 1,00 prósentustig
Bílalán
Kjörvextir bílalána hækka um 1,0 prósentustig og verða 8,00%
Innlán
Breytilegir óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga hækka um allt að 1,00 prósentustig. Vextir veltureikninga hækka um 0,10 prósentustig.
Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.
Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.
https://gamli.frettatiminn.is/29/06/2022/er-lanid-thitt-ologlegt-thu-gaetir-att-krofu-um-endurgreidslu/