• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

20 stiga hiti sunnanlands

20 stiga hiti sunnanlands

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. júní 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Lægðin austur af landinu fjarlægist okkur nú smám saman og dregur úr vindi og úrkomu á austanverðu landinu og eru gular viðvaranir að renna út núna í morgunsárið. Austanlands hefur mælst norðvestan hvassviðri eða stormur, en mesti vindhraði mældist 30 m/s í Papey í gær og hviður hafa farið yfir 40 m/s.

Á eftir lægðinni kemur skammlífur hæðarhryggur inn á landið seinna í dag með björtu og hægu veðri víða og allt upp í 20 stiga hita sunnanlands. Hryggurinn ætlar þó að staldra stutt við því næsta lægð nær landi á morgun úr vestri og byrjar að rigna sunnan- og vestanlands, en víða bjart veður norðaustantil og hiti upp í 22 stig þar. Eftir svalan norðvestanvindinn með rigningu og jafnvel slyddu síðasta sólarhringinn verður því mikill viðsnúningur fyrir íbúa og gesti Norðausturlands um helgina. Spá gerð: 29.06.2024 06:56. Gildir til: 30.06.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu
Minnkandi norðvestanátt austanlands og dálítil væta, 3-10 m/s seinnipartinn og rofar til. Breytileg átt 3-8 og lengst af bjart sunnan- og vestantil. Hiti 10 til 20 stig að deginum, hlýjast syðst.

Suðlæg átt á morgun, víða 8-15 m/s og dálítil súld, en hægari og bjartviðri norðaustanlands. Fer að rigna sunnan- og vestanlands síðdegis. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast um landið norðaustanvert.
Spá gerð: 29.06.2024 09:59. Gildir til: 01.07.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Suðvestan 5-13 m/s og rigning eða súld með köflum. Léttir til þegar líður á daginn, fyrst sunnan- og vestanlands. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast fyrir austan.

Á þriðjudag:
Suðaustlæg eða breytileg átt, 3-8. Bjart með köflum og stöku skúrir, en skýjað vestantil og súld eða rigning þar um kvöldið. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands.

Á miðvikudag:
Norðaustan 5-13 og rigning með köflum, en þurrt norðaustanlands. Hiti 6 til 14 stig, svalast norðvestantil.

Á fimmtudag og föstudag:
Útlit fyrir norðlæga átt og vætu í flestum landshlutum, en síðdegisskúrir suðvestantil. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestanlands.
Spá gerð: 29.06.2024 08:22. Gildir til: 06.07.2024 12:00.

 

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    156 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    100 deilingar
    Share 40 Tweet 25
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?