![](https://frettatiminn.is/wp-content/uploads/2024/06/Omar.jpg)
Ómar Hallsson [1948-2024] er látinn, 76 ára. Valgarður Ómar Hallsson var veitingamaður á vinsælum veitingastöðum Naustinu, Þórscafé, Valhöll á Þingvöllum, stofnaði Ránina á Skólavörðustíg.
Kollegar minnast Ómars sem eins flottasta veitingamanns sinnar tíðar, afburða fagmanns. Hann var einn þeirra sem galt dýrt í efnahagshruninu 1983 þegar verðbólga fór í 130%.
Þá fór Ómar til Ameríku og varð veitingamaður í Kastalanum; Castle Inn í Dallas skammt frá Willkes-Barre í A-Pennsylvaínu.
Hann bjó síðasta rúma áratuginn í Myrtle Beach í S-Karólínu.
![](https://frettatiminn.is/wp-content/uploads/2024/06/449232278_10232756758771159_2291831956892481127_n.jpg)
Ég átti því láni að fagna að fá að vera með Ómari bróður mínum í gegn um Messenger skömmu áður en hann kvaddi. Hann var þá í öndunarvél. Ómar heyrði og sá en gat ekki tjáð sig en nam íslensku bróður síns. Það var ógleymanleg stund.
Hallur Hallsson
![](https://frettatiminn.is/wp-content/uploads/2024/06/Omar-a-DV.jpg)
Umræða