Skipan í dómarastörf
Innmúraður sjálfstæðismaður lýsir því yfir á vef sínum að ráðuneyti dómsmála sé að rústa dóms og lögreglumálum á Íslandi. Ráðuneyti sem Flokkurinn hefur einokað frá því sem elstu menn muna og skipað dómara og lögreglustjóra af sinni hentisemi um allt land og um aldir. Jón Kristinn Snæhólm, best þekktur sem sjónvarpsmaður á Hrafnaþingi sem landsmenn vita vel, um hvað snýst. Áður hefur verið fjallað um Landsrétt og Sigríði Andersen, dómsmálaráðherra sjálfstæðisflokksins sem sagði af sér eftir að Evrópudómstóllinn fór að hafa bein afskipti af dómsmálaráðuneytinu og gjörðum þess og athöfnum á Íslandi eins og heimsfrægt er orðið. Nú er verið að ræða fleira:
Skipan í dómarastörf
,,Það er eins og að Sálfstæðisflokkurinn hafi einsett sér að rústa dómgæslu og lögreglumálum landsins í gegnum tíðina. Allt það vonda í þessum málum hefur gerst á hans vakt“ segir Jón Kristinn Snæhólm og heldur áfram: ,,
- -óhæfir yfirstjórnendur
-launakjör í lamasessi
-hroki og einelti
-fækkun lögreglumanna
-menntun og skólamál í ólestri
-stuldur í munavörslu, óupplyst
-skipan í dómarastörf
-engin sem lítil nýsköpun
-silagangur sýslumannsembætta
-algjört ráðleysi gegn fíkniefnum
Núverandi dómsmálaráðherra og hennar lið hefur á sínum stutta ferli sýnt að þarna sé verið að spyrna við fótum. Þarna fer dómsmálaráðherra sem sýnir kjark.
En betur má ef duga skal..
Ástandið á Suðurnesjum er þannig að viðkomandi deiluaðila þarf að fjarlægja af staðnum og setja í önnur verkefni sem krefjast brýnna skúffu athugunar.
Utanríkisráðuneytið getur verið ráðgefandi í meðhöndlun slíkra verkefna.
Þú ert „Frekinn“. Færður til, ekki rekinn. 🤺 Oft var þörf, nú er nauðsyn!
https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=697055674177115&id=100016180667339 „