• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Þriðjudagur, 3. október 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Sigurður Steinar Ketilsson, fyrrverandi skipherra, er látinn

ritstjorn by ritstjorn
29. október 2019
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

 
Sigurður Steinar Ketilsson, fyrrverandi skipherra, er látinn, 71 árs að aldri. Hann lést á Landspítalanum 27. október.
Sigurður Steinar hóf störf hjá Landhelgisgæslunni sem háseti á varðbátnum Maríu Júlíu þann 13. apríl 1968. Ferilinn var glæsilegur og spannaði hálfa öld. Landhelgisgæslan minnist Sigurðar á heimasíðu sinni.
Störf Sigurðar Steinars einkenndust alla tíð af óeigingirni, umhyggju og þrautseigju. Hann setti mark sitt á leitar- og björgunarstörf í landinu og það var ómetanlegt fyrir Landhelgisgæsluna og þjóðina alla að eiga slíkan mann að.
Hann barðist fyrir tilvist og uppbyggingu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar og átti stóran þátt í að björgunarþyrlan TF-SIF var keypt til landsins á níunda áratugnum.
Þá var hann var þátttakandi í tveimur þorskastríðum og átti þátt í mörgum af fræknustu björgunarafrekum Landhelgisgæslunnar. Sigurður Steinar var til að mynda í áhöfninni á TF-SIF sem bjargaði níu skipverjum Barðans við gríðarlega erfiðar aðstæður árið 1987. Sú björgun markaði þáttaskil fyrir þyrlusveit Landhelgisgæslunnar.
Sigurður Steinar var skipherra á varðskipum Landhelgisgæslunnar í þrjá áratugi. Hann beitti sér fyrir því að þjóðin eignaðist nýtt varðskip og það var vel við hæfi að hann kæmi sjálfur heim til Íslands með varðskipið Þór frá Síle í október 2011. Á Þór starfaði hann sem skipherra frá 2011-2018.
Þá var Sigurður Steinar sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag til landhelgisgæslu og björgunarstarfa í júní 2018.
Hann lauk störfum fyrir Landhelgisgæsluna og íslensku þjóðina þegar hann stýrði varðskipinu Þór til hafnar í síðasta skipti að þann 13. apríl 2018, nákvæmlega fimmtíu árum frá fyrstu ferðinni með Maríu Júlíu.
Nú hefur þessi einstaki skipherra lagt upp í sína síðustu ferð. Landhelgisgæslan vottar ástvinum Sigurðar Steinars innilega samúð.

Sigurdur-Steinar

Sigurður Steinar Ketilsson, um borð í varðskipinu Þór. Ljósmynd: Gassi.

Sigurdur-Steinar

Sigurður Steinar og Georg Kr. Lárusson þann 13. apríl 2018. Ljósmynd: Árni Sæberg. 

SSK_bok

Lögskráning Sigurðar frá 13. apríl 1968.

Sigurður Steinar Ketilsson.

1-vs-Maria-Julia-TFLB--likl.-um-1958
Varðbáturinn María Júlía.                             Varðskipið Þór kemur til landsins árið 2011.

Vardskipid-thor_1572361650895

SSK

  • Afborganir hafa hækkað um 94%

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ung kona fannst látin við smábátahöfnina

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • 750 ökumenn myndaðir við grunnskóla

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Hærri stýrivextir, hærri verðbólga!

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Spilling? Nei, nei, þetta er Ísland“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?