Bílslys varð við Arnarnesbrú áðan þegar tveir bílar lentu í árekstri.
Vegna þessa hefur myndast mikil umferð og fólki er ráðlagt að fara aðra leið til að festast ekki í umferðarteppu. Lögregla og slökkvilið er á vettvangi og minniháttar slys urðu á fólki að sögn varðstjóra slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.
Umræða