• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 15. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Rökstuddur grunur um blóðþorra (ISA) í laxi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. nóvember 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Veira sem valdið getur sjúkdómnum blóðþorra í laxi (ISA – Infectious salmon anaemia) hefur greinst í eldisfiski úr sjókví Laxa fiskeldis ehf í Reyðarfirði. Ef sú greining sem nú liggur fyrir reynist rétt með staðfestingarprófum er þetta í fyrsta sinn sem sjúkdómsvaldandi afbrigði ISA-veirunnar greinist í laxi hér á landi.

ISA-veiran tilheyrir inflúensaveirum af fjölskyldunni Orthomyxoviridae og býr yfir flestum þeim eiginleikum inflúensuveira sem við þekkjum frá bæði spendýrum og fuglum (stundum einnig kölluð laxaflensa). Þekkt eru tvö afbrigði ISA-veirunnar. Annað er meinvirkt og veldur misalvarlegri sýkingu og afföllum (ISA-del), en hitt er góðkynja afbrigði sem aldrei veldur sjúkdómi eða tjóni (ISA-HPR0). Faraldsfræðilegar rannsóknir hafa sýnt að góðkynja afbrigði veirunnar er mun útbreiddara en áður var talið og finnst að öllum líkindum alls staðar í umhverfi laxa, bæði hjá villtum laxi og í eldisumhverfi. Lengi hefur legið fyrir og staðfest að hið góðkynja afbrigði veirunnar er til staðar hér við land og hefur eflaust fylgt laxi frá örófi alda. Þess ber einnig að geta að klínísk einkenni hafa aldrei verið staðfest í villtum laxi á heimsvísu, jafnvel þó hin meinvirka gerð veirunnar (ISA-del) hafi verið einangruð úr slíkum fiski. Sérfræðingum ber saman um að hið meinvirka afbrigði verði til við stökkbreytingu á hinu meinlausa afbrigði. Slíkar stökkbreytingar eru afar sjaldgæfar, en árleg áhætta á sýkingu með stökkbreyttu meinvirku afbrigði hefur verið reiknað til 0,7% fyrir dæmigert sjókvíaeldissvæði.

Frá því fyrsta tilfelli blóðþorra var staðfest í Noregi árið 1984 hefur veiran einnig valdið klínískum sjúkdómi hjá fjölmörgum öðrum laxeldisþjóðum. Næstu greiningar áttu sér stað í Kanada (1996), Skotlandi (1998), Færeyjum (2000), USA (2001), Chile (2001) og Írlandi (2002). Síðasta tilfelli í Færeyjum átti sér stað 2016/17 þegar klínísk sýking kom upp í stakri kví en allur annar fiskur reyndist heilbrigður og var slátrað til manneldis. Veiran er skaðlaus mönnum og berst ekki með fiskafurðum.

ISA-veiran uppgötvaðist við krufningu og sýnatöku í kjölfar vaxandi óútskýrðra affalla í kví G7. Ákvörðun hefur verið tekin um að aflífa lax úr viðkomandi kví við fyrsta tækifæri og farga úrgangi með tryggum hætti. Lax sem alinn er í öðrum kvíum á eldissvæðinu virkar heilbrigður, fóðrun eðlileg og vöxtur góður. Fiskur í nágrannakvíum verður settur undir hert eftirlit og skimanir af öryggisástæðum.

Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum vinnur nú að nánari staðfestingu og skilgreiningu á arfgerð veirunnar. Í fyrstu verða greind veirusýni send til Leipzig í Þýskalandi til sérstakrar raðgreiningar, en einnig verður unnið í samvinnu við rannsóknastofu Evrópusambandsins í veirusjúkdómum lagardýra í Danmörku.

Greining veirunnar nú ítrekar mikilvægi vöktunar og smitvarna til að viðhalda góðri sjúkdómastöðu hérlendis og fyrirbyggja að sjúkdómur á borð við blóðþorra komi upp og nái fótfestu í eldi. Matvælastofnun hefur í varúðarskyni sett dreifingarbann á starfsstöð fyrirtækisins við Gripaldi í Reyðarfirði sem mun gilda þar til slátrað hefur verið úr sjókvíunum og svæðið sett í hvíld.

Umræða
Share6Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    170 deilingar
    Share 68 Tweet 43
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    113 deilingar
    Share 45 Tweet 28
  • Líkfundur

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?