• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Þriðjudagur, 30. maí 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Reykjavíkurborg og OR styrkja uppsetningu hleðslubúnaðar

ritstjorn by ritstjorn
29. desember 2020
in Fréttir, Innlent, Neytendur
0
Share on FacebookShare on Twitter

 

Reykjavíkurborg og Orkuveita Reykjavíkur hafa styrkt 31 húsfélag við uppsetningu hleðslubúnaðar fyrir rafbíla.Samtals hafa 31 húsfélag í Reykjavík fengið samþykktan styrk til uppsetningar hleðslubúnaðar fyrir rafbíla. Þar undir er 1.141 íbúð sem fær aðgang að hleðslubúnaði en samtals nemur styrkupphæðin 42,7 milljónum en fyrsta styrk var úthlutað í september 2019 eins og fram kemur í tilkynningu samkvæmt frétt Fíb.

„Það er náttúrulega mjög þægilegt að geta rennt í hlað og stungið beint í samband í stað þess að vera með snúru inn um glugga íbúðar á annarri hæð í blokk,“ segir Pétur Karlsson íbúi við Eskihlíð 10a í Reykjavík.Pétur og aðrir íbúar Eskihlíðar 10 settu upp tvær hleðslustöðvar með samtals fjórum tenglum nú í september og hlutu styrk frá Reykjavíkurborg og OR til verksins.

Pétur segist alfarið nota hleðslustöðina á planinu við Eskihlíð 10 og er stoltur meðlimur rafbílafjölskyldunnar sem fer ört stækkandi hér á landi.

Það var í apríl 2019 sem Reykjavíkurborg, OR og Veitur og undirrituðu samning um uppbyggingu innviða til hleðslu á rafbílum í Reykjavík. Eitt af verkefnunum í samkomulaginu var stofnun sjóðsins sem ætlað er að styrkja húsfélög fjölbýlishúsa sem hafa sett upp hleðslubúnað fyrir rafbíla á sínum lóðum.

Samningurinn er til þriggja ára og kveður á um að Reykjavíkurborg leggi til 20 milljónir á ári og OR 20 milljónir. Nú er fyrsta árinu að ljúka en styrkurinn er eingöngu veittur til fjöleignarhúsa með 5 íbúðum eða fleiri samkvæmt skráningum fasteigna hjá Þjóðskrá Íslands.

Hámarks styrkupphæð er 1.500.000 kr. en þó aldrei meira en sem nemur 67% af heildarkostnaði verksins með virðisaukaskatti sem greiddur er í samræmi við framlagða reikninga.

Discussion about this post

  • ,,Við eigum 900 milljarða en lepjum dauðann úr skel“

    ,,Við eigum 900 milljarða en lepjum dauðann úr skel“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þetta er ógeðslegt þjóðfélag“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Samgöngustofa hættir innheimtu bifreiðagjalda

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Eitt dauðsfall er of mikið

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Lögreglumál: Ábúendur verði sviptir heimild til að hafa dýr í sinni umsjá

    0 shares
    Share 0 Tweet 0

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?