Eldur kom upp í íbúðarhúsi á Kársnesi í Kópavogi á öðrum tímanum í dag. Þóra Jónasdóttir, stöðvarstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir engan í hættu.
Svartan reyk leggur frá húsinu. Lögregla fékk tilkynningu um eldinn klukkan 13:28 og er slökkvistarf nýhafið.
Umræða