Klukkan 11:19 í dag barst Neyðarlínunni tilkynning um að slys hafi orðið í Ósá fyrir botni Patreksfjarðar. Lögregla, sjúkralið og björgunarsveit fóru þá þegar á vettvang. Auk þess sem þyrla LHG var kölluð til.
Þarna hafði maður á miðjum aldri ætlað að fara út í hyl undir fossi sem Svuntufoss heitir. Mikill straumur reyndist í hylnum og virðist maðurinn hafa misst fótana og lent í sjálfheldu í straumnum og fests um stund þar til nærstaddir komu honum til hjálpar. Hann hafði þá misst meðvitund. Þau sem voru á staðnum hófu þegar endurlífgun og var þeim tilraunum haldið áfram allt þar til maðurinn hafði verið fluttur með þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík, þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Rannsókn á tildrögum þessa slyss er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum. Ótímabært er að greina frá nafni mannsins að svo stöddu en fjölskyldu hans hefur verið tilkynnt um atburðinn.
Umræða