Er Katrín Jakobsdóttir hætt í forsetaframboði? Það kæmi alls ekki á óvart enda stærsti hluti þjóðarinnar sem vill hana ekki sem forseta og hún getur aldrei orðið forseti þjóðarinnar allrar eða sameiningartákn. Katrín er of umdeild vegna óþrifaverka sinna í ríkistjórnum undanfarinna ára, þar sem hún var æðst og í forsæti og með slóð svikinna loforða á ferlinum.
Ef til vill gæti hún verið sameiningartákn elítunnar og auðstéttarinnar sem vill eiga firði landsins og menga með laxeldi sem og að eiga orkuauðlindirnar í friði fyrir þjóðinni. Hvar er stjórnarskráin sem hún lofaði okkur og allt hitt sem hún sveik? Hún er ekki sameiningartákn kjósenda flokksins sem hún stökk frá í þessa vegferð, flokksmenn eru fyrir löngu búnir að yfirgefa hana og flokkinn hennar. Löngu áður en hún kaus að bregða búi sem var orðið þrotabú.
Og já á meðan ég man, þá er því haldið víða fram að kosningabaráttan hennar muni kosta 100 milljónir, þó svo hún segi að sín lágstemmda barátta muni aðeins kosta 40 milljónir, hver trúir því?
Hverjir standa á bak við það að borga 100 milljónir?
Hverjir standa á bak við það að borga 100 milljónir til að koma henni í þetta embætti? Eru það kjósendur hennar sem hafa allir yfirgefið hana og flokkinn sem hún er búinn að rústa og mun ekki komast á þing næst? Eru það kommarnir, svokallaðir „vinir hennar og umbjóðendur“, sem mæta í láglaunavinnu með kaffibrúsa og nestisbox og þræla frá morgni til kvölds og ná ekki endum saman og bíða enn eftir að hún leiðrétti ranglætið? Eru það hennar umbjóðendur?
Nei, það er útgerðarelítan og Sjálfstæðisflokkurinn sem hafa sölsað undir sig með hennar aðstoð fiskinn í sjónum og allar aðrar auðlindir sem eru vinir hennar og treysta á að hún sé ,,þeirra“ kona og fjárfesta í því.
Vanhæf sem forseti og enginn öryggisventill fyrir þjóðina
Hún er vanhæf sem forseti, þar sem hún mun ekki gera annað en vera stimpilpúði fyrir vini sína, auðmennina og elítuna og kvítta upp á öll frumvörp sem hæfur forseti myndi að sjálfsögðu synja og setja í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún er enginn öryggisventill fyrir þjóðina og mun aldrei leggja nein mál í þjóðaratkvæðagreiðslu. Engar líkur eru á að hún geri annað en að kvítta upp á eignatilfærslu á auðlindum landsins til elítunnar, bæði mengandi og ekki enda er Vg ekki grænn flokkur fyrir fimm aura, þetta eru frumvörp sem hún samdi sjálf með vinum sínum, hví ætti hún að stoppa þau af?
Er Katrín Jakobsdóttir hætt í forsetaframboði?
Samkvæmt Mbl.is virðist vera að Katrín Jakobsdóttir sé hætt í forsetaframboði, því þar segir að allir frambjóðendur hafi mætt niður á bryggju til þess að keppa í að flaka fisk. En þar segir: ,, Forsetaframbjóðendur mættust á bryggjunni fyrir framan Brim í Reykjavíkurhöfn í gær til þess að keppa í flökun og hnýtingu. Eða allir nema Jón Gnarr, sem var í tökum á nýrri íslenskri sjónvarpsþáttaröð.“ Svo eru birtar myndir af frambjóðendum og gert lítið úr þeim. Höfundurinn lítur reyndar framhjá einu smáatriði og það er það að Katrín Jakobsdóttir mætti ekki í flökunina. Því er eðlilegt að ég spyrji, er Katrín Jakobsdóttir hætt í framboði eða er hún einfaldlega of fín með sig til þess að vinna í fiski? Mogginn sem hefur hampað Katrínu kýs að minnast ekki á hana og hver er ástæðan fyrir því? Fyrirsögnin er hinsvegar athygliverð: ,,Forsetaframbjóðendur sýndu sín réttu andlit“
Markmiðið að fá frambjóðendur til að tengja sig við grundvallaratvinnugrein Íslands
Þá segir í þessari blaðagrein: ,,Markmiðið var að fá frambjóðendur til að tengja sig við grundvallaratvinnugrein Íslands sem er sjávarútvegur en Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á sunnudaginn.“ Ef einhver hefði þurft á því að halda að ná smá jarðsambandi og tengjast lífsháttum þjóðarinnar með því að dífa hendi í kalt vatn, er það Katrín Jakobsdóttir sem hefur aldrei gert ærlegt handtak og veruleikafyrrt eftir því eins og ferill hennar sannar.
Munið svo að kjósa rétt en ekki rangt!
Jón Gunnarsson
Forsetaframbjóðendur sýndu sín réttu andlit
,,Frambjóðandi valdaklíkunnar – Látum ekki brosið blekkja okkur“