Aukin skjálftavirkni hefur verið í Kötlu síðustu daga. Skömmu eftir miðnætti í nótt 30. júní hófst hrina og klukkan 6:30 höfðu rúmlega 95 skjálftar mælst, 8 yfir 3 stig og sá stærsti 4.4. Jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli síðustu vikur er sú mesta síðan haustið 2016. Mælingar sýna aukningu í rafleiðni í Múlakvísl sem er nú óvenjuhá miðað við árstíma. Gasmælir á Láguhvolum sýnir aukningu í jarðhitagasi. Túlkun mælinga bendir frekar til jarðhitavirkni en ekki er hægt að útiloka kvikuhreyfingar.
Hér er mynd síðan í morgun úr vefmyndavél við brúna yfir Múlakvísl á Þjóðvegi 1.
Líkur eru á vatnavöxtum í Múlakvísl vegna aukins hlutfalls jarðhitavatns í ánni. Gasmengun við ána getur fylgt jarðhitavatni. Um helgina má búast við hægri breytilegri átt á svæðinu og því getur gas safnast fyrir.
Næstu daga má búast við áframhaldandi jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli. Jarðskjálftar auka líkur á berg- og íshruni.
Fólki er ráðlagt frá að vera á ferli nærri upptökum Múlakvíslar og við Kötlujökul.
Umræða