• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 22. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fjármálaráðherra varaformaður bankaráðs asíska fjárfestingabankans

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. júlí 2020
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Fjármálaráðherra ávarpar ársfund asíska fjárfestingabankans, AIIB sem varaformaður bankaráðs

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra flutti ávarp á ársfundi asíska innviðafjárfestingarbankans (AIIB) sem haldinn var með fjarfundi en Bjarni er varaformaður bankaráðs bankans (e. board of governors). Í ávarpinu lagði Bjarni m.a. áherslu á málefni hafsins og hvatti til þess að bankinn byggði upp getu og sérþekkingu til að fjármagna verkefni sem stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda hafsins og hreinsun mengaðra hafsvæða.
Forseti Kína Xi Jinping flutti opnunarávarp fundarins en kínverjar höfðu forystu um stofnun bankans og eru leiðandi í starfsemi bankans. Á fundinum var Jin Liqun kjörinn forseti AIIB í annað sinn en hann hefur gengt stöðunni frá stofnun bankans.
AIIB er ört vaxandi alþjóðafjármálastofnun hóf starfsemi í janúar 2016. Ísland var meðal 57 stofnenda, ásamt öllum Norðurlöndunum, en meðlimir eru nú orðnir 102. Við skipulag bankans er byggt á reynslu alþjóðaþróunarbanka og er áhersla lögð á opna, óháða og gagnsæja stjórnarhætti og skýr ábyrgðarskil.
AIIB var stofnaður utan um samstarf þjóða til að taka á innviðafjárfestingarþörf í Asíu, styrkja tengingar og hagræna þróun á svæðinu og styðja þannig við hagvöxt og aðgengi íbúa að grunnþjónustu. AIIB hefur þegar lánað til meira en 19 ma. bandaríkjadala til 87 verkefna víðsvegar í Asíu en hlutafé bankans er 100 milljarðar bandaríkjadala.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lög samþykkt sem auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda og bæta upplýsingar um leigumarkaðinn

    Hreinsun og uppsagnir í Mennta- og barnamálaráðuneytinu

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Aðgangi að samfélagsmiðlum á Íslandi jafnvel lokað

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Strandveiðar skaða ekki fiskistofna né lífríki sjávar

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Ákærður fyrir að nauðga sex ára stúlku og eiginkonu sinni

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Vændiskonur á Íslandi í boði ríkisstjórnarinnar

    263 deilingar
    Share 105 Tweet 66
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?