Hér að neðan má lesa einhvurja leiðinlegustu grein sem rituð hefur verið á íslenska tungu. Vel til þess fallin að svæfa og jafnvel lækna ofvirka einstaklinga.
Nenni einhvur að klára að lesa þessa langloku hlýtur hinum sama að verða ljóst að hún gæti hafa verið skrifuð af forystumönnum núverandi ríkisstjórnar.
Og takirðu út orðin VEIRA og DELTA gæti hún hafa verið kvittuð og vottuð af öllum forystumönnum Framsóknarflokksins á síðustu öld. Sumsé ekkert nýtt og enginn neisti.
Og það sem mestu skiptir, engin gagnrýni. Það er hvorki hægt að vera sammála eða ósammála blaðri um allt og ekkert.
Niðurstaðan er sú að stjórnarandstaðan er máttlaus, gagnslaus, bitlaus og foringjalaus. Og með afbrigðum leiðinleg. Bólusett eður ei.
Umræða