• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 14. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Gul viðvörun vegna veðurs – Alldjúp lægð suðaustur af landinu

Vestan og norðvestan 13-18 m/s og staðbundnar vindhviður að 25-30 m/s

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. júlí 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Alldjúp lægð suðaustur af landinu hreyfist til norðurs og mun grava um sig út af Melrakkasléttu. Lægðin veldur norðanátt sem dregur svalt heimskautloft yfir landið. Úrkomusvæði lægðarinnar liggur yfir austanverðu landinu og rignir dálítið þar, en vegna kuldans er sums staðar slydda eða snjókom til fjalla og hálkublettir á vegum. Nokkrar veðurviðvaranir vegna úrkomu og vinda eru í gildi til hádegis. Sunnanlands er þó úrkomulítið og milt og sést jafnvel til sólar.

Á morgun er spáð vestantrekkingi og rigningu víða norðanlands, en mun hægara og stöku skúrum syðra. Sums staðar hvöss vestnátt og hviðótt úti við norðausturströndina og er veðurviðvörun í gildi þess vegna. Áfram norða- og norðvestanátt á frídegi verslunarmanna og dálítil væta norðantil, en annars bjart með köflum og svipað hitafar og fyrri daga. Að öðru leiti ætti stærsta ferðahelgi ársins að geta orðið flestum til ánægju ef ferðalangar búa sig eftir veðri og aka varlega.

Gul viðvörun vegna veðurs: Norðurland eystra og Austurland að Glettingi 

Veðuryfirlit
220 km ANA af Dalatanga er 994 mb lægð á hreyfingu N og síðar NV. Langt suður í hafi er 1025 mb hæð og frá henni liggur hæðarhryggur til NV yfir Grænland.

Veðurhorfur á landinu
Norðvestan 3-10 m/s, skýjað með köflum og stöku skúrir á sunnan og vestanverðu landinu en léttir til á Suðausturlandi. Norðvestan 8-15 m/s norðan og austanlands en 13-18 m/s á norðaustur horninu. Allvíða rigning en úrkomulítið á Austfjörðum. Hiti 5 til 9 stig norðanlands en 8 til 15 stig syðra, mildast suðaustanlands. Vestlæg átt á morgun, 5-13 m/s en hvassara með norðausturströndinni. Áfram vætusamt á norðurlandi annars bjart með köflum og að mestu þurrt. Hiti breytist lítið.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Norðvestan 3-8 m/s og skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 8 til 13 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag (frídagur verslunarmanna):
Norðvestan 8-15 á Vestfjörðum og við norðurströndina en norðan 5-13 m/s í öðrum landshlutum. Rigning eða skúrir um landið norðanvert en slydda til fjalla og hiti 4 til 9 stig en bjartviðri syðra og hiti að 15 stigum, mildast suðaustanlands.

Á þriðjudag:
Norðlæg átt, 8-13 m/s vestantil, en annars mun hægari. Rigning með norðurströndinni annars skýjað en bjartviðri á Suður og Suðausturlandi. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast syðst.

Á miðvikudag:
Norðvestan 5-13 m/s en hvassara um tíma á Austurlandi. Rigning á norðan og austanverðu landinu annars skýjað með köflum en þurrt. Áfram kalt í veðri norðantil en hiti að 14 stigum suðaustanlands.

Á fimmtudag:
Minnkandi norðvestanátt, skýjað og úrkomulítið og lítið eitt hlýnandi.

Á föstudag:
Útlit fyrir vestlæga átt með dálítilli vætu vestantil en bjartviðri um landið austanvert. Hlýnar í veðri.
Spá gerð: 30.07.2022 08:33. Gildir til: 06.08.2022 12:00.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    155 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    100 deilingar
    Share 40 Tweet 25
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Brot um 500 ökumanna mynduð

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?