• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 8. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Óvissustig Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. júlí 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga. Jarðskjálftahrina hófst uppúr hádegi í dag 30. júlí og er enn í gangi. Veðurstofa Íslands hefur sett Krýsuvík á gult vegna flugumferðar en mesta virknin er NA við Fagradalsfjall.

Íbúar eru hvattir til þess að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni. Veðurstofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því er gott að sýna aðgát við brattar hlíðar.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi Almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.
Á óvissustigi fara viðbragðsaðilar og stofnanir yfir áætlanir sínar og viðbúnað. Nánar er hægt að kynna sér varnir og viðbúnað hér á heimasíðu almannavarna. Einnig er mikilvægt að kynna sér viðbrögð við jarðskjálfta á heimasíðu Almannavarna.

Reykjanesskagi – jarðskjálftar síðustu 48 klst.

Fjöldi skjálfta:

  • Stærð minni en 1 alls:  224
  • Stærð 1 til 2 alls:  236
  • Stærð 2 til 3 alls:  85
  • Stærri en 3 alls:  16
  • Samtals: 561
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    124 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    56 deilingar
    Share 39 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?