James B. Hecker hershöfðingi og yfirmaður flugherstjórnar NATO, (AIRCOM) og flughers Bandaríkjanna í Evrópu (USAFE) er í heimsókn á Íslandi. Hecker fundaði í dag með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra þar sem þau ræddu átökin í Úkraínu, aukinn varnaviðbúnað Altantshafsbandalagsins og mikilvægi Íslands fyrir stöðuvitund á Norður-Atlantshafi.
„Við ræddum þróun öryggismála og viðbúnað bandalagsins, sérstaklega viðbúnað sem snýr að loftvörnum og eftirliti. Ísland leggur sitt af mörkum innan bandalagsins með rekstri ratsjár- og fjarskiptastöðva sem skipta miklu máli fyrir eftirlit með loftrýminu yfir Norður-Atlantshafi,“ segir Þórdís Kolbrún.
Heckler kynnti sér jafnframt öryggissvæðið í Keflavík, heimsótti ratsjárstöðina á Bolafjalli og hitti liðsmenn bandarísku flugsveitarinnar sem fylgja B-2 flugvélunum í Keflavík.
Umræða