• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 12. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kaup ríkisins á Norðurhúsi við Austurbakka

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. september 2022
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Undirritaður hefur verið samningur um kaup ríkisins á Norðurhúsi við Austurbakka af Landsbankanum. Um er að ræða tæplega 6 þús. fermetra byggingu sem er hluti af nýframkvæmdum Landsbankans við Austurhöfn. 

Fyrirhugað er að starfsemi utanríkisráðuneytisins verði komið fyrir í byggingunni, ásamt því að nýta hluta hennar undir sýningar- og menningartengda starfsemi á vegum Listasafns Íslands og er þá einkanlega horft til samtímalistar. Töluverð tækifæri eru til staðar til að tengja fyrirhugað sýningarrými við þá menningarstarfsemi sem þegar fer fram í Hörpu og síðar Listaháskóla Íslands sem koma á fyrir í Tollhúsinu.

Húsnæðiskostur Stjórnarráðsins er háður miklum annmörkum – húsnæði ráðuneytanna er sundurleitt, á mörgum stöðum og í mörgum tilfellum úrelt. Einnig hefur verið lögð áhersla á að ráðuneyti séu staðsett í námunda við hvert annað til að styrkja samstarf þeirra og skapa tækifæri til hagræðingar og samnýtingar á þjónustu. Áfram verður unnið að úrbótum í húsnæðismálum annarra ráðuneyta.

Fyrir liggur að utanríkisráðuneytið mun næsta haust missa stóran hluta húsnæðis síns sem það hefur haft á leigu. Með flutningi utanríkisráðuneytisins í Norðurhús Austurbakka verður starfseminni komið fyrir á einum stað í sveigjanlegu og nútímalegu húsnæði sem verður nýtt með hagkvæmum hætti.

Húsnæðið verður keypt fyrir andvirði sérstakrar viðbótararðgreiðslu frá Landsbankanum til ríkissjóðs sem þegar hefur verið innt af hendi og nemur kaupverðið um 6 ma.kr. miðað við fullfrágengið húsnæði.

Samhliða þessum kaupum hefur verið ákveðið að ganga til samninga um kaup ríkisins á gamla Landsbankahúsinu við Austurstræti. Sú bygging er eitt af helstu kennileitum borgarinnar og menningarsögulega verðmæt sem slík. Það telst því álitlegur kostur að byggingunni verði fundið verðugt hlutverk í íslensku samfélagi, t.a.m. undir starfsemi dómstóla en endurskipuleggja þarf húsnæðismál þeirra til lengri tíma.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Mokveiði en strandveiðibátar mega ekki veiða

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • 55,651,000 kr. greitt af 50% láni á Íslandi en 15,838,435 kr. af 100% láni í Færeyjum

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?