Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu um banaslys í Reykjanesbæ
„Klukkan 11:27 í morgun fékk lögreglan á Suðurnesjum tilkynningu um alvarlegt vinnuslys við Fitjabraut í Reykjanesbæ. Viðbragðsaðilar héldu þegar á vettvang.
Ljóst var þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang að um banaslys var að ræða. Unnið er að rannsókn málsins og frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu.“
Umræða